FRISK Software International

FRISK Software International


Reykjavík, 16. júní 2005

Ný útgáfa af Lykla-Pétri fyrir Windows

Útgáfa 3.16c af Lykla-Pétri fyrir Windows hefur nú verið gefin út.

Þessi nýjasta útgáfa af Lykla-Pétri fyrir Windows (F-PROT Antivirus for Windows) inniheldur nokkrar mikilvægar lagfæringar og umbætur. Meðal annars leysir útgáfa 3.16c vandamál með árekstra notendaréttinda við uppfærslu veirugagnaskráa. Þetta er vandamál sem fáeinir notendur hafa rekið sig á undanfarið.

Vegna þessara breytinga eru notendur Lykla-Péturs fyrir Windows hvattir til að uppfæra forrit sín í útgáfu 3.16c við fyrsta tækifæri.

Til þess að uppfæra Lykla-Pétur þarf að smella á hnappinn 'Innskráning' neðst á hnappastikunni hér til vinstri. Sláðu inn viðskiptanúmer þitt. Þá kemur upp síða með hlekkjum á þær útgáfur Lykla-Péturs sem þú hefur keypt. Smelltu á nafn forritsins sem þú vilt sækja og veldu 'Save'. Vistaðu skrána á harða drifinu. Þegar skráin hefur verið sótt skaltu ræsa hana og Lykla-Pétur mun þá leiða þig í gegnum uppsetningarferlið.