Reykjavík, 5. september 2005
Nýjar útgáfur af Lykla-Pétri fyrir öll UNIX stýrikerfi
Nýjar útgáfur af Lykla-Pétri fyrir öll UNIX stýrikerfi hafa verið gefnar út. Lykla-Pétur fyrir Linux x86, BSD x86, Solaris SPARC, Solaris x86, AIX á IBM pSeries og Linux á IBM zSeries er nú í útgáfu 4.6.1.
Þessar nýju útgáfur kynna til sögunnar nokkrar minniháttar lagfæringar og veita notendum enn meira gagnaöryggi en fyrr.
Vegna þessara breytinga eru notendur Lykla-Péturs fyrir Linux x86, BSD x86, Solaris SPARC, Solaris x86, AIX á IBM pSeries og Linux á IBM zSeries hvattir til að uppfæra forrit sín í útgáfu 4.6.1.
Til þess að uppfæra Lykla-Pétur þarf að smella á hnappinn 'Innskráning' neðst á hnappastikunni hér til vinstri.
Sláðu inn viðskiptanúmer þitt. Þá kemur upp síða með hlekkjum á þær útgáfur Lykla-Péturs sem þú hefur keypt. Smelltu á nafn forritsins sem þú vilt sækja og veldu 'Save'. Vistaðu skrána á harða drifinu. Þegar skráin hefur verið sótt skaltu ræsa hana og Lykla-Pétur mun þá leiða þig í gegnum uppsetningarferlið.
