Reykjavík, 8. nóvember 2005
Netsamband Íslendinga við umheiminn: Áskorun til stjórnvalda
Í gær rofnaði netsamband Íslands við umheiminn í gegnum Farice sæstrenginn í enn eitt skiptið og tók 10 klukkustundir að koma sambandi aftur á. Samkvæmt heimasíðu Farice (www.farice.is) er þetta í fimmta sinn síðan 30. júní sl. sem samband um strenginn rofnar (30. júní, 26. júlí, 16. október, 28. október og 7. nóvember). Í öll þessi skipti hefur þetta gerst vegna skemmda á strengnum þar sem hann liggur yfir Skotland.
Þegar samband í gegnum Farice rofnar færist öll umferð hans yfir á eldri sæstrenginn Cantat sem hefur langt því frá næga bandvídd til að sinna þessari auknu umferð. Þar af leiðandi getur öll netumferð til og frá landinu tafist umtalsvert þar til búið er að gera við strenginn. Þetta tekur oft langan tíma og sem dæmi má nefna þá tæpu 3 daga sem tók að koma Farice í lag eftir að samband rofnaði þann 30. júní sl.
Þekkingariðnaður Íslands vex með hverju árinu og fyrirtæki treysta í síauknum mæli á stöðugt netsamband við útlönd. Fyrirtæki sem sinna sínum viðskiptum í gegnum netið reiða sig á stöðugleika þessa netsambands og geta hlotið töluverðan skaða í hvert sinn sem samband rofnar eða umferð tefst. Mikilvægur tölvupóstur getur týnst og samskipti íslenskra fyrirtækja við viðskiptavini sína og samstarfsmenn erlendis tefjast óásættanlega. Erlendir viðskiptavinir ná oft á tíðum ekki sambandi við vefsetur þessara fyrirtækja sem hýstar eru hérlendis og getur ímynd þeirra beðið töluverða hnekki vegna þessa.
Ef Íslendingar vilja þróa hér þekkingarþjóðfélag og þekkingariðnað sem er samkeppnishæfur á alþjóðamarkaði er nauðsynlegt að þessum fyrirtækjum sé tryggt samskiptaumhverfi sem byggist á áreiðanlegu og stöðugu netsambandi við útlönd. Friðrik Skúlason ehf. skorar því á stjórnvöld að koma netsambandi Íslands við umheiminn í skikkanlegt horf hið fyrsta og búa þessum fyrirtækjum þannig áreiðanlegt og samkeppnishæft samskipta- og viðskiptaumhverfi.
Þessu til viðbótar má benda á að kostnaður íslenskra fyrirtækja við gagnaflutning um Farice er um það bil 8 til 11 sinnum hærri en kostnaður erlendra samkeppnisaðila við sambærilega þjónustu erlendis. Ljóst er þessi gríðarlegi kostnaðarmunur grefur einnig alvarlega undan alþjóðlegu samkeppnishæfi íslenskra fyrirtækja sem reiða sig á slíkan gagnaflutning.
Friðrik Skúlason ehf.
www.frisk.is
Nánari upplýsingar gefur Friðrik Skúlason í síma 540-7400.
