FRISK Software International

FRISK Software International


Reykjavík, 8. desember 2005

Lykla-Pétur verður að F-PROT Antivirus

Veiruvarnarforrit Friðriks Skúlasonar ehf., þekkt frá upphafi á Íslandi sem Lykla-Pétur, hefur í meira en fimmtán ár verið selt á heimsmarkaði undir vörumerkinu F-PROT Antivirus. Til að samræma markaðssetningu fyrirtækisins innanlands sem utan verður forritið Lykla-Pétur framvegis selt á Íslandi undir nafninu F-PROT Antivirus.

Þó við séum að breyta nafni Lykla-Péturs í F-PROT Antivirus þá mun Windows útgáfa forritsins áfram koma út í íslenskri útgáfu. Allur stuðningur og þjónusta verða áfram veitt íslenskum viðskiptavinum á íslensku.

Í tilefni af þessum breytingum bjóðum við nýjum notendum að kaupa heimilisleyfi sem gildir fyrir uppsetningu á öllum Windows tölvum heimilisins, í eitt ár, á aðeins 4.900 krónur.

F-PROT Antivirus (Lykla-Pétur)

F-PROT Antivirus (Lykla-Pétur) er ein öflugasta veiruvörn sem völ er á og að þróun forritsins stendur samhentur hópur nokkurra helstu veirusérfræðinga heims. Þó að F-PROT Antivirus (Lykla-Pétur) sé mjög öflugt veiruvarnarforrit þá leggur það mun minna álag á tölvur en mörg af helstu veiruvarnarforritunum á markaðnum í dag.