FRISK Software International

FRISK Software International


Reykjavík, 9. janúar 2006

Nýjar útgáfur af F-PROT Antivirus

Friðrik Skúlason ehf. hefur nú gefið út nýjar útgáfur af F-PROT Antivirus fyrir öll stýrikerfi.

Þessar nýjustu útgáfur af F-PROT Antivirus veita mun betri skönnun á Windows Metafile myndum (WMF) og vernda notendur þannig gegn illkvittnum forritum sem falin eru í þess konar skrám.

Notendur F-PROT Antivirus fyrir öll stýrikerfi eru hvattir til að uppfæra forrit sín í þessar nýjustu útgáfur við fyrsta tækifæri.

Til þess að uppfæra F-PROT Antivirus þarf að smella á hnappinn 'Innskráning' á hnappastikunni hér til vinstri. Sláðu inn viðskiptanúmer þitt. Þá kemur upp síða með hlekkjum á þær útgáfur F-PROT Antivirus sem þú hefur keypt og smelltu á nafn þess forrits sem þú vilt sækja.