Reykjavík, 30. nóvember 2006
Samstarf Hive og Friðrik Skúlasonar ehf.
Fyrirtækin Hive og Friðrik Skúlason ehf. hafa undirritað samstarfssamning um markaðssetningu og dreifingu Hive á F-PROT Antivirus, fullkominni veiruvörn frá Friðriki Skúlasyni ehf.
Samstarfsamningurinn felur í sér að nú gefst viðskiptavinum Hive kostur á að sækja veiruvörnina F-PROT Antivirus á tölvur sínar og verja þær þannig fyrir vírusum og innbrotum tölvuþrjóta.
Undanfarin misseri hefur öryggi á netinu verið mikið í umræðunni og fjölmörg tilfelli komið upp um innbrot í heimabanka auk þess sem einkatölvur eru yfirteknar og notaður t.d. til dreifingar á ruslpósti eða ólöglegu efni.
Samstarfssamningur Hive og Friðriks Skúlasonar ehf. er mikilvægt skref til að tryggja öryggi á netinu. Með þessu býður Hive viðskiptavinum sínum upp á eina öflugustu veiruvörn í heiminum, en hún er framleidd og þróuð á Íslandi. Það er samdóma álit Hive og Friðriks Skúlasonar ehf. að þessi samstarfssamningur muni skila öruggari tölvu- og internetnotkun fyrir íslenska netnotendur.
Um Hive:
Hive er íslenskt fjarskiptafyrirtæki sem sérhæfir sig í háhraða internettengingum fyrir heimili og er brautryðjandi í því að veita mun hagstæðari heimasímaþjónustu en áður hefur þekkst. Á þeim tveimur árum sem liðin eru frá stofnun Hive, hefur félagið náð því markmiði að þjónusta yfir 20% íslenskra heimila með háhraða internettengingar og símaþjónustu.
Um Friðrik Skúlason:
Friðrik Skúlason ehf. (FRISK Software) er alþjóðlegt öryggis- og þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði veiruvarna. Fyrirtækið er í dag eitt af fremstu veiruvarnarfyrirtækjum heims og hjá því starfa rúmlega fimmtíu manns víða um heim.
Um F-PROT Antivirus:
Um árabil hefur ein öflugasta veiruvörnin í heiminum verið þróuð og framleidd á Íslandi. Samhentur hópur nokkurra helstu veirusérfræðinga heims vinnur stanslaust að því að þróa veiruvörn sem er mjög öflug en leggur samt mun minna álag á tölvur en mörg af helstu veiruvarnarforritunum á markaðnum í dag.
Þessi veiruvörn var lengi þekkt á Íslandi sem „Lykla-Pétur“ en ber nú sama nafn í öllum löndum: F-PROT Antivirus.
