FRISK Software International

FRISK Software International


Reykjavík, 31. janúar 2007

Ný kynslóð af F-PROT Antivirus fyrir Windows

Í dag hefur Friðrik Skúlason ehf. gefið út nýjar útgáfur af F-PROT Antivirus fyrir Windows. Hin hefðbundna heimilisútgáfa annars vegar og fyrirtækjaútgáfan hins vegar sem býður uppá fleiri möguleika á uppsetningu og dreifingu á netum fyrirtækja.

Með þessari útgáfu og mikilli þróunarvinnu þá er ný og endurbætt kynslóð af F-PROT Antivirus komin út, en F-PROT Antivirus er ein öflugasta veiruvörn sem völ er á og að þróun forritsins stendur samhentur hópur nokkurra helstu veirusérfræðinga heims.

Nú notar F-PROT Antivirus nýja veiruvarnarvél og skanna, háþróaða reglusafnaleit sem verndar tölvuna gegn nýjum og jafnvel óþekktum veirum, alsjálfvirkar uppfærslur á veirugagnaskrám og á forritinu sjálfu, og margt fleira....

Við mælum eindregið með því að notendur eldri útgáfa af F-PROT Antivirus fyrir Windows sem nota Windows stýrikerfi 2000, 2003 og XP, uppfæri forrit sín sem fyrst í nýjustu útgáfu. Til þess að uppfæra F-PROT Antivirus vinsamlegast heimsækið: http://www.frisk.is/login/

Frekari upplýsingar um hina nýju kynslóð veiruvarnarforrits Friðriks Skúlasonar ehf., útgáfu 6 af F-PROT Antivirus fyrir Windows, er að finna á vefsíðu F-PROT Antivirus fyrir Windows.

Leiðbeiningar um hvernig skal uppfæra F-PROT Antivirus í nýjustu útgáfu er að finna á þjónustusvæðinu fyrir F-PROT Antivirus.


Frekari upplýsingar:

Um Friðrik Skúlason ehf.:
Friðrik Skúlason ehf. (FRISK Software) er alþjóðlegt öryggis- og þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði veiruvarna. Fyrirtækið er í dag eitt af fremstu veiruvarnarfyrirtækjum heims og hjá því starfa rúmlega fimmtíu manns víða um heim.

Um F-PROT Antivirus:
Um árabil hefur ein öflugasta veiruvörnin í heiminum verið þróuð og framleidd á Íslandi. Samhentur hópur nokkurra helstu veirusérfræðinga heims vinnur stanslaust að því að þróa veiruvörn sem er mjög öflug en leggur samt mun minna álag á tölvur en mörg af helstu veiruvarnarforritunum á markaðnum í dag.

Þessi veiruvörn var lengi þekkt á Íslandi sem „Lykla-Pétur“ en ber nú sama nafn í öllum löndum: F-PROT Antivirus.