Reykjavík, 27. október 2007
Ný útgáfa af F-PROT Antivirus fyrir Windows
Útgáfa 6.0.8.0 af F-PROT Antivirus fyrir Windows hefur verið gefin út.
Það kom hins vegar upp vandamál við útgáfu forritsins laugardagsmorguninn hjá sumum þeirra tölva sem uppfærðu F-PROT Antivirus sjálfvirkt á þeim tíma. Einkenni á þessu vandamáli er önnur hvor eða báðar af eftirfarandi villum:
- E Access Violation
- Failure to load transport client
Þeir sem áttu í vandræðum með að keyra upp forritið frá því á laugardaginn geta lagað forritið með því að fylgja eftirfarandi leiðbeiningum:
Prófaðu að ýta á Start > Run
Í glugganum sem kemur upp, afritaðu eftirfarandi setningu og límdu inn í gluggann:
MsiExec.exe /FP {E1F9819A-F9C9-4A27-B927-D11C0269597F}
Ýttu svo á OK, þá ætti uppsetningin að keyra. Spurt verður hvort þú viljir Gera við eða Fjarlægja, veldu þá Gera við og smelltu á Áfram. Þá keyrir viðgerðin. Fylgdu svo leiðbeiningunum og leyfðu tölvunni að endurræsa að þessu loknu.
Þeir sem eiga enn við frekari vandræði að stríða með F-PROT Antivirus ættu að hafa samband við þjónustudeild Friðriks Skúlasonar ehf.
Við biðjumst innilega afsökunar á öllum þeim óþægindum sem þessi vandræði hafa ollið.
Vinsamlegast athugið að notendur útgáfu 3 þurfa að uppfæra í útgáfu 6 sem fyrst (aðeins Windows 2000, XP og 2003). Leiðbeiningar um hvernig skal uppfæra F-PROT Antivirus í nýjustu útgáfu á þessari hjálparsíðu.
Útgáfu 6.0.8.0 fylgja ýmsar breytingar. Viðmóti forritsins hefur verið lítillega breytt og ýmsir hnökrar verið lagaðir.
Einnig hefur veiruvarnarvélin verið stórbætt í þessari útgáfu og þess vegna þá mælum við eindregið með því að notendur eldri útgáfa af F-PROT Antivirus fyrir Windows sem nota Windows stýrikerfi 2000, 2003 og XP, uppfæri forrit sín sem fyrst í nýjustu útgáfu. Til þess að uppfæra F-PROT Antivirus vinsamlegast heimsækið: http://www.frisk.is/login/
Þessi útgáfa heldur áfram með tilraunastuðning fyrir því að keyra F-PROT Antivirus á Windows Vista. Þessi tilraunaútgáfa á Windows Vista er einungis ætlaður þeim sem vilja prófa F-PROT Antivirus sem tilraun á Windows Vista en er ekki til venjulegrar notkunnar.
Frekari upplýsingar um hina nýju kynslóð veiruvarnarforrits Friðriks Skúlasonar ehf., útgáfu 6 af F-PROT Antivirus fyrir Windows, er að finna á vefsíðu F-PROT Antivirus fyrir Windows.
Frekari upplýsingar:
Um Friðrik Skúlason ehf.:
Friðrik Skúlason ehf. (FRISK Software) er alþjóðlegt öryggis- og þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði veiruvarna. Fyrirtækið er í dag eitt af fremstu veiruvarnarfyrirtækjum heims og hjá því starfa rúmlega fimmtíu manns víða um heim.
Um F-PROT Antivirus:
Um árabil hefur ein öflugasta veiruvörnin í heiminum verið þróuð og framleidd á Íslandi. Samhentur hópur nokkurra helstu veirusérfræðinga heims vinnur stanslaust að því að þróa veiruvörn sem er mjög öflug en leggur samt mun minna álag á tölvur en mörg af helstu veiruvarnarforritunum á markaðnum í dag.
Þessi veiruvörn var lengi þekkt á Íslandi sem „Lykla-Pétur“ en ber nú sama nafn í öllum löndum: F-PROT Antivirus.
