FRISK Software International

FRISK Software International


Reykjavík, 16. nóvember 2007

'Welcome to the Matrix'

Við höfum verið að fá töluvert af fyrirspurnum vegna tölvupósts sem varar fólk við að opna viðhengi við tölvupóst að nafninu 'Welcome to the matrixpps..'

Þessi póstur er gabb og á sér líklegastan uppruna í Svíþjóð en er til að minnsta kosti á íslensku, ensku, þýsku og frönsku. Ekki áframsenda tölvupóstinn ef þið fáið hann.

Þó svo að tölvuveirur dreifi sér oft í gegnum tölvupóst þá halda þeir sjaldnast sig við einhvern einn og ákveðinn titil eða eina ákveðna tegund viðhengja.

Ráðin sem við gefum eru mikið einfaldari:
Ekki treysta tölvupósti frá ókunnugum.
Ekki treysta viðhengjum sem þið búist ekki við.
Ekki treysta ókunnugum vefsíðum (sérstaklega ekki klámsíðum).
Alltaf nota veiruvarnaforrit.

Keðjutölvupóstar eru sjaldnast góð ráð og innihalda nánast aldrei ráð um tölvuöryggi sem hægt er að treysta. Gerið vinum og vandamönnum ykkar greiða með því að dreifa ekki misvísandi og fölskum upplýsingum.


Frekari upplýsingar:

Um Friðrik Skúlason ehf.:
Friðrik Skúlason ehf. (FRISK Software) er alþjóðlegt öryggis- og þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði veiruvarna. Fyrirtækið er í dag eitt af fremstu veiruvarnarfyrirtækjum heims og hjá því starfa rúmlega fimmtíu manns víða um heim.

Um F-PROT Antivirus:
Um árabil hefur ein öflugasta veiruvörnin í heiminum verið þróuð og framleidd á Íslandi. Samhentur hópur nokkurra helstu veirusérfræðinga heims vinnur stanslaust að því að þróa veiruvörn sem er mjög öflug en leggur samt mun minna álag á tölvur en mörg af helstu veiruvarnarforritunum á markaðnum í dag.

Þessi veiruvörn var lengi þekkt á Íslandi sem „Lykla-Pétur“ en ber nú sama nafn í öllum löndum: F-PROT Antivirus.