FRISK Software International

FRISK Software International


Reykjavík, 31. janúar 2008

Friðrik Skúlason ehf. kynnir fyrstu veiruvörnina á íslensku fyrir farsíma.

Friðrik Skúlason ehf. framleiðandi F-PROT Antivirus (áður Lykla-Pétur) hefur gefið út nýja veiruvörn fyrir farsíma. Forritið virkar á helstu tegundir snjallsíma s.s. Nokia og Windows Mobile síma. Vörninni er ætlað að vernda eigendur slíkra tækja fyrir þeim kostnaði og óþægindum sem farsímaveirur nútímans geta valdið.

Sérfræðingar Friðriks Skúlasonar ehf. fylgjast með öllum sviðum tölvuöryggis og hafa lengi horft á þróun veira í farsímum og lófatölvum.

Fyrirtækið hefur þróað veiruvarnir fyrir t.d. lófatölvur í nokkurn tíma en ekki selt á almennum markaði. Undanfarið hefur orðið mikil breyting á því hvernig íslendingar nota farsíma sína og telur fyrirtækið rétt að bregðast við með þessari útgáfu núna.

F-PROT Antivirus fyrir snjallsíma er bæði á íslensku og ensku. Hana er hægt að nálgast á www.frisk.is/mobile eða í gegnum síma 540-7400


Frekari upplýsingar:

Um Friðrik Skúlason ehf.:
Friðrik Skúlason ehf. (FRISK Software) er alþjóðlegt öryggis- og þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði veiruvarna. Fyrirtækið er í dag eitt af fremstu veiruvarnarfyrirtækjum heims og hjá því starfa rúmlega fimmtíu manns víða um heim.

Um F-PROT Antivirus:
Um árabil hefur ein öflugasta veiruvörnin í heiminum verið þróuð og framleidd á Íslandi. Samhentur hópur nokkurra helstu veirusérfræðinga heims vinnur stanslaust að því að þróa veiruvörn sem er mjög öflug en leggur samt mun minna álag á tölvur en mörg af helstu veiruvarnarforritunum á markaðnum í dag.

Þessi veiruvörn var lengi þekkt á Íslandi sem „Lykla-Pétur“ en ber nú sama nafn í öllum löndum: F-PROT Antivirus.