Reykjavík, 3. júní 2008
Stuðningi við F-PROT Antivirus útgáfu 3 á Windows hætt
Eins og tilkynnt var á síðasta ári þá er Friðrik Skúlason ehf. að undirbúa það að hætta stuðningi við útgáfu 3 af F-PROT Antivirus fyrir Windows.
Fyrsta skrefið er að hætta að bjóða upp á uppfærslur á veirugagnaskrám fyrir útgáfu 3 af F-PROT Antivirus fyrir Windows XP og 2000 og fyrir eldri útgáfum af F-PROT Antivirus fyrir Windows (3.16e og eldri). Þessi breyting átti sér stað í gær, 2. júní 2008.
Notendur sem nota Windows 2000 og XP er bent á útgáfu 6 af F-PROT Antivirus.
Notendur útgáfu 3 þurfa að uppfæra í útgáfu 6 sem fyrst (Windows 2000 og XP). Leiðbeiningar um hvernig skal uppfæra F-PROT Antivirus í nýjustu útgáfu á þessari hjálparsíðu.
Frekari upplýsingar:
Um Friðrik Skúlason ehf.:
Friðrik Skúlason ehf. (FRISK Software) er alþjóðlegt öryggis- og þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði veiruvarna. Fyrirtækið er í dag eitt af fremstu veiruvarnarfyrirtækjum heims og hjá því starfa rúmlega fimmtíu manns víða um heim.
Um F-PROT Antivirus:
Um árabil hefur ein öflugasta veiruvörnin í heiminum verið þróuð og framleidd á Íslandi. Samhentur hópur nokkurra helstu veirusérfræðinga heims vinnur stanslaust að því að þróa veiruvörn sem er mjög öflug en leggur samt mun minna álag á tölvur en mörg af helstu veiruvarnarforritunum á markaðnum í dag.
Þessi veiruvörn var lengi þekkt á Íslandi sem „Lykla-Pétur“ en ber nú sama nafn í öllum löndum: F-PROT Antivirus.
