FRISK Software International

FRISK Software International


Reykjavík, 9. október 2008

Breytt pöntunarferli

Vegna bankaástandsins hefur verið tímabundið lokað fyrir íslensku pöntunarsíðu Friðriks Skúlasonar ehf.

Ein einföld leið til að kaupa eða endurnýja áskrift er að hringja í okkur (540-7400) og gefa þannig upp kortanúmer. Enginn bankakostnaður er því samfara. Önnur leið er að senda okkur tölvupóst á sala@frisk.is.

Við vonum sannarlega að þetta ástand vari ekki lengi og biðjumst afsökunar á þeim óþægindum sem þetta gæti valdið.

Hin tímabundna lokun kemur til vegna þess að SEB, sænski bankinn sem sér um netviðskipti okkar með greiðslukortum, er hættur að taka við greiðslukortafærslum í íslenskum krónum. Athugið þó að enn er hægt að panta/endurnýja með greiðslukorti ef haft er samband við okkur og greitt með svokallaðri símgreiðslu.


Frekari upplýsingar:

Um Friðrik Skúlason ehf.:
Friðrik Skúlason ehf. (FRISK Software) er alþjóðlegt öryggis- og þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði veiruvarna. Fyrirtækið er í dag eitt af fremstu veiruvarnarfyrirtækjum heims og hjá því starfa rúmlega fimmtíu manns víða um heim.

Um F-PROT Antivirus:
Um árabil hefur ein öflugasta veiruvörnin í heiminum verið þróuð og framleidd á Íslandi. Samhentur hópur nokkurra helstu veirusérfræðinga heims vinnur stanslaust að því að þróa veiruvörn sem er mjög öflug en leggur samt mun minna álag á tölvur en mörg af helstu veiruvarnarforritunum á markaðnum í dag.

Þessi veiruvörn var lengi þekkt á Íslandi sem „Lykla-Pétur“ en ber nú sama nafn í öllum löndum: F-PROT Antivirus.