Reykjavík, 1. apríl 2009
Conficker Ormurinn
Conficker ormurinn hefur vakið mikla athygli um heim allan síðustu daga og vikur.
Viðskiptavinir Friðriks Skúlasonar ehf. þurfa hinsvegar ekki að hafa áhyggjur þar sem að veiruvarnaforritið okkar F-PROT Antivirus (Lykla-Pétur) finnur Conficker orminn.
Notendur F-PROT Antivirus eru öruggir með okkar forrit. Flestir af þeim sem þurfa að hafa áhyggjur eru tölvunotendur sem hafa ekki sett upp veiruvarnaforrit á tölvunum sínum og hafa ekki uppfært Windows (nánar tiltekið þá er það uppfærslan "Microsoft Security Update MS08-067" sem skiptir máli). Við bendum þeim, að sjálfsögðu, að nota eina íslenska veiruvarnaforritið í heiminum: F-PROT Antivirus.
Frekari upplýsingar:
Um Friðrik Skúlason ehf.:
Friðrik Skúlason ehf. (FRISK Software) er alþjóðlegt öryggis- og þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði veiruvarna.
Fyrirtækið er í dag eitt af fremstu veiruvarnarfyrirtækjum heims og hjá því starfa rúmlega fimmtíu manns víða um heim.
Um F-PROT Antivirus:
Um árabil hefur ein öflugasta veiruvörnin í heiminum verið þróuð og framleidd á Íslandi. Samhentur hópur nokkurra helstu
veirusérfræðinga heims vinnur stanslaust að því að þróa veiruvörn sem er mjög öflug en leggur samt mun minna álag á tölvur
en mörg af helstu veiruvarnarforritunum á markaðnum í dag.
Þessi veiruvörn var lengi þekkt á Íslandi sem „Lykla-Pétur“ en ber nú sama nafn í öllum löndum: F-PROT Antivirus.
