FRISK Software International

FRISK Software International


Reykjavík, 11. ágúst 2009

Ný útgáfa af F-PROT Antivirus fyrir Windows

Útgáfa 6.0.9.2 af F-PROT Antivirus (Lykla-Pétur) fyrir Windows hefur verið gefin út.

Veiruvarnarvélin, ásamt ýmsu öðru, hefur verið bætt í þessari útgáfu og ýmsir hnökrar lagfærðir sem styrkja nú varnir notenda F-PROT Antivirus enn frekar.

Þeir notendur sem hafa Internet útgáfuna af F-PROT Antivirus fyrir Windows munu uppfærast í þessa nýju útgáfu sjálfkrafa. Fyrir þá sem nota LAN útgáfuna (stærri fyrirtæki) mun hún verða fáanleg gegnum áskriftarsetrið á næstu dögum. Innskráning í áskriftarsetrið

Frekari upplýsingar um hina nýju kynslóð veiruvarnarforrits Friðriks Skúlasonar ehf., útgáfu 6 af F-PROT Antivirus fyrir Windows, er að finna á vefsíðu F-PROT Antivirus fyrir Windows.


Frekari upplýsingar:

Um Friðrik Skúlason ehf.:
Friðrik Skúlason ehf. (FRISK Software) er alþjóðlegt öryggis- og þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði veiruvarna. Fyrirtækið er í dag eitt af fremstu veiruvarnarfyrirtækjum heims og hjá því starfa rúmlega fimmtíu manns víða um heim.

Um F-PROT Antivirus:
Um árabil hefur ein öflugasta veiruvörnin í heiminum verið þróuð og framleidd á Íslandi. Samhentur hópur nokkurra helstu veirusérfræðinga heims vinnur stanslaust að því að þróa veiruvörn sem er mjög öflug en leggur samt mun minna álag á tölvur en mörg af helstu veiruvarnarforritunum á markaðnum í dag.

Þessi veiruvörn var lengi þekkt á Íslandi sem „Lykla-Pétur“ en ber nú sama nafn í öllum löndum: F-PROT Antivirus.