Reykjavík, 28. ágúst 2009
Ný útgáfa af Lykla-Pétri fyrir Windows
Útgáfa 6.0.9.2 af Lykla-Pétri (F-PROT Antivirus) fyrir Windows hefur verið gefin út.
Að þessu sinni er veiruvarnarvélin uppfærð lítillega til að laga fáeina hnökra, en einkum ákveðinn galla sem hugsanlega gat hrjáð 64-bita stýrikerfi. Þá var líka verið að snyrta til hegðunina gagnvart Windows Security Center, þar sem Windows Vista og Windows 7 gerðu kröfu um miklar breytingar þar í síðustu útgáfu.
Vegna þessa var sérstaklega mikilvægt að koma fljótt með uppfærslu og hefur það gengið vonum framar. Við sjáum þar að auki fram á að geta gefið úr uppfærslur oftar en áður og viljum helst uppfæra forritið með nýjungum og lagfæringum á um 3-4 mánaða fresti framvegis.
Þeir notendur sem hafa Internet útgáfuna af Lykla-Pétri munu uppfærast sjálfkrafa, hvort sem það er 32-bita eða 64-bita, í þessa nýju útgáfu. Fyrir þá sem nota LAN útgáfuna (stærri fyrirtæki) mun hún verða fáanleg gegnum áskriftarsetrið. Innskráning í áskriftarsetrið
Frekari upplýsingar um hina nýju kynslóð veiruvarnarforrits Friðriks Skúlasonar ehf., útgáfu 6 af F-PROT Antivirus fyrir Windows, er að finna á vefsíðu F-PROT Antivirus fyrir Windows.
Frekari upplýsingar:
Um Friðrik Skúlason ehf.:
Friðrik Skúlason ehf. (FRISK Software) er alþjóðlegt öryggis- og þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði veiruvarna. Fyrirtækið er í dag eitt af fremstu veiruvarnarfyrirtækjum heims og hjá því starfa rúmlega fimmtíu manns víða um heim.
Um F-PROT Antivirus:
Um árabil hefur ein öflugasta veiruvörnin í heiminum verið þróuð og framleidd á Íslandi. Samhentur hópur nokkurra helstu veirusérfræðinga heims vinnur stanslaust að því að þróa veiruvörn sem er mjög öflug en leggur samt mun minna álag á tölvur en mörg af helstu veiruvarnarforritunum á markaðnum í dag.
Þessi veiruvörn var lengi þekkt á Íslandi sem „Lykla-Pétur“ en ber nú sama nafn í öllum löndum: F-PROT Antivirus.
