FRISK Software International

FRISK Software International


Reykjavík, 28. ágúst 2009

Tilkynning vegna Lykla-Péturs, útgáfu 6.0.9.3

Í dag komu fram vandamál með hina nýju útgáfu af Lykla-Pétri (F-PROT Antivirus). Það lýsir sér þannig að undir ákveðnum kringumstæðum mun eldri útgáfa af Lykla-Pétri reyna án árangurs, og í sífellu, að uppfæra sig í nýju útgáfuna.

Orsakirnar fyrir þessu eru þegar fundnar og vandamálið verður leyst mjög fljótlega. Lausnin mun ekki fela í sér neinar aðgerðir af hálfu notenda heldur mun uppfærslukerfi Lykla-Péturs alfarið sjá um að leiðrétta fyrri uppfærslu með þeirri réttu.

Friðrik Skúlason ehf. biðst velvirðingar á þessum truflunum sem þetta kann að valda á tölvunotkun viðskiptavina og mun tryggja að atvik sem þetta endurtaki sig ekki.

Vert er að taka fram að notendur geta komist hjá truflunum með því að enduruppsetja Lykla-Pétur, þ.e. fjarlægja forritið og setja það upp að nýju.
Hér eru leiðbeiningar um nýuppsetningu sem notast má við eftir að Lykla-Pétur hefur verið fjarlægður.


Frekari upplýsingar:

Um Friðrik Skúlason ehf.:
Friðrik Skúlason ehf. (FRISK Software) er alþjóðlegt öryggis- og þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði veiruvarna. Fyrirtækið er í dag eitt af fremstu veiruvarnarfyrirtækjum heims og hjá því starfa rúmlega fimmtíu manns víða um heim.

Um F-PROT Antivirus:
Um árabil hefur ein öflugasta veiruvörnin í heiminum verið þróuð og framleidd á Íslandi. Samhentur hópur nokkurra helstu veirusérfræðinga heims vinnur stanslaust að því að þróa veiruvörn sem er mjög öflug en leggur samt mun minna álag á tölvur en mörg af helstu veiruvarnarforritunum á markaðnum í dag.

Þessi veiruvörn var lengi þekkt á Íslandi sem „Lykla-Pétur“ en ber nú sama nafn í öllum löndum: F-PROT Antivirus.