FRISK Software International

FRISK Software International


Reykjavík, 18. janúar 2010

Friðrik Skúlason ehf. lækkar verð á erfiðum tímum.

Friðrik Skúlason ehf. hefur ákveðið að stórlækka upphafsverð á fyrirtækjaútgáfu vírusvarnarinnar Lykla-Pétur eða um 60% til að koma til móts við fyrirtæki í síharðnandi rekstrarumhverfi. Þegar erlendar vírusvarnir hækka umtalsvert út af gengi krónunnar þá er íslenska vírusvörnin Lykla-Pétur einfaldlega hagkvæm. Öll þjónusta er líka innanlands. Meðal annarra breytinga sem fyrirtækið kynnir er að við endurnýjun á ársáskriftinni er verðið síðan það sama og upphafsverð. Þessar breytingar hafa í för með sér jafnari dreifingu á kostnaði við að halda uppi öryggishugbúnaðinum.

Einnig höfum við bætt við Small Business útgáfu. Hún er hugsuð fyrir lítil fyrirtæki sem vilja gjarnan nota sama leyfið á heimilistölvum. Þannig má setja vírusvörnina hvort sem er á fyrirtækistölvur eða heimilistölvur, fyrir allt að 5 vélar. Þessi áskrift kostar árlega kr.7.900 m/vsk Svo viljum við líka minna á að við bjóðum 25% afslátt fyrir skóla og góðgerðafélög.

Lykla-Pétur (F-PROT Antivirus) er reglulega sent í prófanir á virkni vírusvarnarinnar og fékk nú síðast í desember 2009 VB100 gæðastimpilinn frá hinu virta Virus Bulletin magazine. Virus Bulletin er óháður aðili sem prufukeyrir allar helstu vírusvarnir heims. Frekari upplýsingar um nýju verðin er að finna á verðlista Lykla-Péturs fyrir fyrirtæki (http://www.frisk.is/verdskra/verd_win_fyr.html).

Einnig er hægt að hafa samband við söludeild Friðriks Skúlasonar á sala@frisk.is eða með því að hringja í 540-7400.

Frekari upplýsingar:

Um Friðrik Skúlason ehf.:
Friðrik Skúlason ehf. (FRISK Software) er alþjóðlegt öryggis- og þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði veiruvarna. Fyrirtækið er í dag eitt af fremstu veiruvarnarfyrirtækjum heims.

Um Lykla-Pétur (F-PROT Antivirus):
Um árabil hefur ein öflugasta veiruvörnin í heiminum verið þróuð og framleidd á Íslandi. Samhentur hópur nokkurra helstu veirusérfræðinga heims vinnur stanslaust að því að þróa veiruvörn sem er mjög öflug en leggur samt mun minna álag á tölvur en mörg af helstu veiruvarnarforritunum á markaðnum í dag.