Leiðbeiningar um örugga tölvunotkun
Nú til dags þurfa nettengdir tölvunotendur ávallt að vera afar meðvitaðir um þær hættur sem að þeim steðja í formi vírusa, orma, trójuhesta og fleiri skemmdarforrita. Fyrst og fremst er mikilvægt að notendur tileinki sér hágæða veiruvörn og uppfæri ávallt veirugagnaskrárnar um leið og þær eru gefnar út. Einnig eru nokkur atriði sem notendur ættu að hafa í huga við daglega tölvunotkun sína, sumt sem ber að varast og nokkrar góðar reglur um hvernig skal bregðast við nýjum hættum.
Hér að neðan höfum við tekið saman það helsta sem notendur ættu að hafa í huga við daglega tölvunotkun sína. Með því að fylgja þessum reglum samhliða öflugri veiruvörn geta notendur aukið öryggi gagna sinna til muna.
- Hafðu ávallt nýjustu útgáfu af Lykla-Pétri uppsetta á tölvunni og uppfærðu veirugagnaskrárnar reglulega.
- Gættu ávallt varúðar við meðhöndlun tölvupósts frá ókunnugum. Viðhengi eru sérstaklega hættuleg. Aldrei opna viðhengi nema þú vitir nákvæmlega hvert innihaldið er, þó svo að það líti út fyrir að koma frá einhverjum sem þú þekkir. Flestir ormar nú til dags geta falsað netfang sendanda.
- Uppfærðu stýrikerfi þitt reglulega. Ef þú er Windows notandi skaltu nota Windows Automatic Updates til að sækja þér allar nýjustu uppfærslur um leið og þær eru gefnar út. Frekari upplýsingar má finna á uppfærslusíðu Microsoft Windows.
- Ef þú notar Internet Explorer / Outlook Express eða Office / Outlook skaltu ávallt hafa nýjustu útgáfur uppsettar. Í eldri útgáfum eru stundum öryggisholur sem vírusar og ormar geta nýtt sér. Til að uppfæra Internet Explorer ferðu á uppfærslusíðu Microsoft Windows. Til að uppfæra Micorosoft Office og Outlook ferðu á uppfærslusíðu Microsoft Office.
- Notaðu eldvegg. Meðan þú vafrar á Internetinu verkar eldveggurinn sem skjöldur á milli þinnar tölvu og skemmdarforrita sem á vegi þínum gætu orðið. Frekari upplýsingar um eldveggi má finna hér.
- Skannaðu alla diska (geisladiska, floppy diskettur, utanáliggjandi drif, o.s.frv.) sem þú tengir við tölvuna þína áður en þú opnar innihald þeirra.
- Skannaðu öll skjöl sem þú færð í gegnum IRC, MSN, ICW, Kazaa og aðrar netþjónustur.
- Notaðu hugbúnað sem finnur auglýsinga- og njósnaforrit. Frekari upplýsingar má finna hér.
