Fréttir

Gleðilegt ár!

Við hjá Friðriki Skúlasyni ehf. viljum óska viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleðilegs árs og jafnframt þökkum við öllum fyrir viðskiptin á liðnu ári.

Ný útgáfa af Lykla-Pétri fyrir Windows

Útgáfa 6.0.9.6 af Lykla-Pétri (F-PROT Antivirus) fyrir Windows hefur verið gefin út, bæði í heimilis- og fyrirtækjaútgáfu.

Margverðlaunaða vírusvarnarvélin okkar hefur verið uppfærð og ýmsir hnökrar lagfærðir sem ættu að gera notendur Lykla-Péturs enn öruggari.

Lykla-Pétur mun uppfærast sjálfkrafa.

Frekari upplýsingar um hina nýju kynslóð veiruvarnarforrits Friðriks Skúlasonar ehf., útgáfu 6 af F-PROT Antivirus fyrir Windows, er að finna á vefsíðu F-PROT Antivirus fyrir Windows.

Um Friðrik Skúlason ehf.:
Friðrik Skúlason ehf. (FRISK Software) er alþjóðlegt öryggis- og þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði veiruvarna. Fyrirtækið er í dag eitt af fremstu veiruvarnarfyrirtækjum heims.

Um Lykla-Pétur (F-PROT Antivirus):
Um árabil hefur ein öflugasta veiruvörnin í heiminum verið þróuð og framleidd á Íslandi. Samhentur hópur nokkurra helstu veirusérfræðinga heims vinnur stanslaust að því að þróa veiruvörn sem er mjög öflug en leggur samt mun minna álag á tölvur en mörg af helstu veiruvarnarforritunum á markaðnum í dag.

Þessi veiruvörn er þekkt á Íslandi sem „Lykla-Pétur“ en heitir F-PROT Antivirus erlendis.

Lykla-Pétur fær VB100 gæðastimpilinn frá Virus Bulletin

Í nýjasta tímariti Virus Bulletin þá fékk Lykla-Pétur VB100 gæðastimpilinn. Þessi viðurkenning staðfestir enn og aftur þá sérhæfðu vitneskju sem Friðrik Skúlason ehf. hefur hvað varðar vírusvarnir og tölvuöryggi. Vírusvarnatækni Friðriks Skúlasonar ehf. hefur margoft í sögu fyrirtækisins hlotið þennan eftirsótta gæðastimpil.

Virus Bulletin er óháður aðili sem prufukeyrir reglulega allar helstu vírusvarnir sem í boði eru.

Frekari upplýsingar um VB100 gæðastimpilinn er að finna á vefsíðu Virus Bulletin.

Friðrik Skúlason ehf. er núna á Facebook og Twitter

Friðrik Skúlason ehf. er kominn með Facebook síðu.

Like-aðu síðuna okkar til þess að fylgjast með fréttum af nýjum vörum, uppfærslum, og öðru spennandi sem er að gerast hjá fyrirtækinu.

Þar er einnig að finna öryggisfréttir og öryggisábendingar sem gagnast öllum tölvunotendum og athyglisverðar fréttir úr vírus- og vírusvarnarbransanum.

Svo getur líka verið að þið fáið að sjá skemmtilegar sögur frá fyrirtækinu.

Einnig erum við á Twitter á ensku, fyrir þá sem kjósa frekar þá þjónustu.

Smelltu hér ef þú vilt fylgjast með okkur á Facebook.

Lykla-Pétur vírusvörn fær VB100 gæðastimpilinn

Lykla-Pétur vírusvörn (undir erlenda heitinu F-PROT Antivirus) fékk VB100 gæðastimpilinn fyrir ágúst 2011. VB100 verðlaunin eru veitt af hinu virta Virus Bulletin tímariti. Með þessu þá er það staðfest að hin íslenska vírusvörn Lykla-Pétur er forrit á heimsmælikvarða.

Frekari upplýsingar um VB100 gæðastimpilinn er að finna á vefsíðu Virus Bulletin.

Lesa meira

2011-2012 © Friðrik Skúlason ehf. · Þjónusta: thjonusta@frisk.is · Söludeild: sala@frisk.is · Sími 540 7400