FRISK Software International

FRISK Software International


Reykjavík, 21. júní 2006

Áríðandi fréttatilkynning

Gífurlegur fjöldi SMS smáskilaboða, jafnvel yfir hundrað þúsund, voru send á íslensk GSM símanumer um tíu-leytið í morgun með textanum hér að neðan. Þessi SMS skilaboð hafa einnig verið send í miklu magni í öðrum löndum víðsvegar um heiminn, þar á meðal í Bretlandi og í Ástralíu.

From: csoft.co.uk
Thank you for subscribing to Irreal Dating Service. Your phone will be charged $2.00 per day until you unregister ONLINE at www.irrealhost.com – Enjoy!

Við vörum alla eindregið við því að fara á þessa heimasíðu eða að fylgja þeim leiðbeiningum sem þar er að finna. Ef þessum leiðbeiningum er fylgt eftir smitast tölva viðkomandi með hættulegum nýjum bakdyrum. F-PROT Antivirus veiruvarnarhugbúnaðurinn frá Friðriki Skúlasyni ehf. finnur þessar hættulegu bakdyr þó að flest veiruvarnarforrit hafi ekki gert það í morgun.

Fyrr í þessum mánuðu fengu sumir notendur Símans svipuð smáskilaboð en í þetta sinn eru viðskiptavinir annarra símafyrirtækja einnig að fá þau. SMS smáskilaboðin sjálf skaða ekki og enginn kostnaður er sjálfkrafa skuldfærður á símreikning notenda eins og sagt er í skilaboðunum.

Við hvetjum alla til að eyða þessum smáskilaboðum og hunsa öll slík skilaboð í framtíðinni. Þar að auki eru notendur enn og aftur hvattir til að fylgja ekki þessum leiðbeiningum eða yfirhöfuð að keyra upp óþekkt forrit á tölvum sínum. Einnig er mikilvægt að notendur setji upp veiruvarnarhugbúnað á vélum sínum og noti hann til að skanna öll skjöl og forrit sem sótt eru af Netinu.

F-PROT Antivirus veiruvarnarhugbúnaðinn má sækja á með því að smella hér