FRISK Software International

FRISK Software International


jdbgmgr.exe gabbið breiðist út eins og eldur í sinu enn á ný

Þetta gabb byrjaði fyrst að breiðast út vorið 2002 hér á landi og hafði þá verið þýtt úr ensku yfir á íslensku. Tölvupóstur sem inniheldur þessa gabb viðvörun virðist nú aftur vera að ná mikilli útbreiðslu hérlendis.

Skráin jdbgmgr.exe er hluti af Windows kerfinu og ætti því ekki að eyða henni út, þó svo að almennur notandi verði lítt var við það þó hana vanti. Vinsamlegast hunsið þessi bréf og alls ekki senda þau áfram.

Bréf það sem inniheldur þessa gabb viðvörun er svohljóðandi:


Subject: Vírus viðvörun!!!

Ég hef komist að að í tölvunni minni hefur leynst vírus. Hvorki Norton eða McAffee finna vírusinn og þarf því að leita að honum sérstaklega. Hann dvelur sem "björn" í 14 daga í tölvunni og síðan eyðileggur hann harðadiskinn hjá þér. Eins og aðrir vírusar fjölgar hann sér með því að senda sig til allra í adressubókinni þinni.

Svona skal leita að honum:

1. Farðu í Start, síðan Find og þaðan í Files and Folders
2. Leita skal að skrá að nafni jdbgmgr.exe og leita skal að honum á [look IN My computer og C: drifinu
3. Ef þú finnur skrá/r sem hafa lítinn björn sem Icon EKKI OPNA HANA/ÞÆR.
4. Veldu skrána/skrárnar með HÆGRI MÚSARHNAPPNUM og eyddu skránni/um
5. Tæmdu ruslafötuna þína og þá áttu að vera laus við björninn.
6. Ef þú hefur fundið björninn í tölvunni sendu þá þessa viðvörun til allra í adressubókinni þinni.


Notendur eru hvattir til þess að taka keðjubréfum sem segja þeim að eyða skrám af tölvum sínum með miklum fyrirvara. Bréf sem biðja um að þau séu send til allra í tölvupóstfangaskránni skulu ávallt lesin með tortryggni og ekki vera send áfram.