Reykjavík, 25. janúar 2006
Vegna frétta um klámtölvuveiru
Vegna frétta í dag um að svokölluð klámtölvuveira, kennd við Kamasútra, herji á tölvukerfi landsmanna vill Friðrik Skúlason ehf. koma eftirfarandi á framfæri:
Veiran sem hér um ræðir kom fram á sjónarsviðið þann 16. janúar og er því ekki ný af nálinni líkt og fréttir hafa hermt. Hún er nefnd W32/Kapser.A@mm af sérfræðingum Friðriks Skúlasonar ehf. og hefur F-PROT Antivirus þekkt þessa veiru og stöðvað hana allt frá 16. janúar. Tölvuveira þessi er í nokkurri dreifingu, en langt frá því að um einhvers konar einsdæmi sé að ræða.
Notendur F-PROT Antivirus sem uppfært hafa vörn sína ættu því ekki að verða fyrir nokkrum óþægindum af völdum þessarar veiru, en við hvetjum alla tölvunotendur til að huga að reglulegum uppfærslum veiruvarna sinna.
Til að nálgast nánari upplýsingar um þessa tölvuveiru má heimasækja þessa upplýsingasíðu, en hún er á ensku.
