Reykjavík, 1. febrúar 2006
Ormurinn W32/Kapser.A@mm mun eyða skrám þann 3. febrúar
Þann 3. febrúar mun ormurinn W32/Kapser.A@mm eyða fjölmörgum skrám á sýktum tölvum og síðan endurtaka leikinn þriðja dag hvers mánaðar um alla framtíð eða þar til orminum er sjálfum eytt. Meðal þeirra skjala sem ormurinn mun eyða eru Word skjöl, Excel skjöl, PowerPoint skjöl, Adobe PDF skjöl og Adobe Photoshop skjöl. (Skjölum með eftirfarandi endingum verður eytt: .doc, .xls, .mdb, .mde, .ppt, .pps, .zip, .rar, .pdf, .psd, .dmp) Notendur sem ekki hafa hreinsað smitaðar vélar fyrir þennan tíma og sem ekki eiga afrit af skjölum sínum munu tapa þeim endanlega. Nýlega hefur verið fjallað um þennan orm í fjölmiðlum þar sem hann hefur verið kallaður „klámtölvuveira“ og verið kenndur við Kamasútra.
Síðastliðin ár hefur þróunin færst frá því að veirur séu hannaðar til að valda skemmdum á smituðum vélum og yfir í það að skapa höfundum fjárhagslegan ávinning með misnotkun smitaðra véla. Veirur hafa undanfarið gert sitt besta til að láta lítið fyrir sér fara til að geta haldið áfram að misnota sýktar vélar án þess að vekja athygli eigenda. Þessi misnotkun felst meðal annars í því að nota sýktar vélar til að senda út mikið magn af ruslpósti, að fylgjast með netnotkun og að stela kreditkorta- og bankaupplýsingum. W32/Kapser.A@mm er frábrugðinn flestum veirum og ormum sem komið hafa fram á sjónarsviðið undanfarið þar sem hann er hannaður til þess eins að skemma fyrir notendum með því að eyða skjölum.
W32/Kapser.A@mm berst í viðhengjum við tölvupósta sem lofa klámmyndum eða öðru myndefni sé viðhengi opnað. Þegar viðhengi er opnað smitast tölvan og veiran safnar tölvupóstföngum af harða drifinu og notar þau síðan til að dreifa sér áfram.
F-PROT Antivirus hefur borið kennsl á þennan orm frá því að hann kom fyrst fram á sjónarsviðið þann 16. janúar síðastliðinn. F-PROT Antivirus kemur í veg fyrir smit þar sem forritið er uppsett og hreinsar óvarðar tölvur sem hafa smitast.
W32/Kapser.A@mm er einnig þekktur undir eftirfarandi nöfnum: Kama Sutra worm, W32.Blackmal.E@mm, Email-Worm.Win32.Nyxem.e, W32/Nyxem-D, W32/Tearec.A.worm, W32/MyWife.d, og WORM_GREW.A.
