FRISK Software International

FRISK Software International


Reykjavík, 7. mars 2005

W32/Kelvir.A og W32/Kelvir.B

Nýr ormur dreifir sér í gegnum MSN Messenger

W32/Kelvir.A og W32/Kelvir.B eru tvö afbrigði af nýjum ormi sem dreifir sér í gegnum hið vinsæla skilaboðaforrit MSN Messenger. Notendur fá skilaboð sem virðast koma frá einhverjum þeirra sem eru á tenglalista viðkomandi. Skilaboðin innihalda hlekk og stuttan texta á ensku sem hvetur notandann til að smella á hlekkinn. Þegar smellt er á hlekkinn er ormurinn sóttur og tölva notandans sýkist. Ormurinn sendir því næst svipuð skilaboð til allra þeirra sem eru á tenglalista viðkomandi og sem eru á þeim tímapunkti skráðir inn (e. Online) í MSN Messenger þjónustuna. Þeir sem ekki smella á hlekkinn sýkjast ekki og er notendum því bent á að smella ekki á hlekki sem þeim eru sendir á þennan máta og að loka slíkum skilaboðagluggum strax.

Lykla-Pétur finnur W32/Kelvir.A og W32/Kelvir.B með veirugagnaskrám sínum dagsettum 7. mars eða síðar.

Við hvetjum alla tölvunotendur til að vera á varðbergi gagnvart grunsamlegum skilaboðaum og opna ekki viðhengi nema þeir séu fullvissir um að það sé ósýkt.

Við mælum með því að notendur sem nú þegar hafa veiruvörn uppsetta á tölvum sínum gangi úr skugga um að þeir séu með nýjustu útgáfu veiruvarnarinnar og uppfæri veirugagnaskrár sínar við fyrsta tækifæri. Þeir sem ekki hafa veiruvörn uppsetta á tölvum sínum ættu að koma sér upp veiruvörn sem allra fyrst