FRISK Software International

FRISK Software International


„La vita é bella“ vírusgabbið dreifist víða hérlendis

Þetta gabb fer nú vítt og breitt með tölvupósti í íslenskri þýðingu en hefur verið í dreifingu erlendis síðan 2002. Þetta sama gabb hefur áður birst á ensku, spænsku og portúgölsku og varar við vírus sem berst í Power Point skjali sem viðhengi við tölvupóst.

Vinsamlegast athugið að þetta er ekki raunveruleg viðvörun og þessi tiltekni vírus er ekki til. Notendur eru hvattir til að eyða þessum skilaboðum og áframsenda þau ekki.

Takið ávallt keðjubréfum með miklum fyrirvara. Bréf sem biðja um að þau séu send til allra í tölvupóstfangaskránni skulu lesin með tortryggni og ekki vera send áfram þar sem slík bréf valda óþarfa áhyggjum og óþægindum.

Bréf það sem inniheldur þessa gabb viðvörun er svohljóðandi:



Subject: ATH!!! Lesið þessa viðvörun um vírus!

Þessar upplýsingar komu frá Microsoft og Norton.

Við biðjum ykkur um að senda þeim sem þið þekkið þennan póst.

Ef þið fáið tölvupóst, sem innheldur Power Pont skjal sem inniheldur "La vita é bella.pps" eða "Life is beautiful.pps", þá alls ekki opna það. EYÐIÐ ÞVí STRAX!

Ef þið eruð svo óheppin að opna það , þá birtist eftirfarandi skilaboð: "Adesso é tardi, la Vostra Vitanon é piú bella" eða "Now it's too late, your life is not beautifull anymore" Þetta eyðir öllu sem í tölvunni er og kemst í allar upplýsingar sem í tölvunni eru.

Um er að ræða nýjan vírus, sem frá því á laugardagseftirmiðdag er byrjaður að herja á tölvur. Við þurfum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að stöðva þennan vírus.

AOL styrkir enn meira þennan vírus og vírusvarnarforritin geta ekki fundið hann.