Leiðbeiningar um örugga tölvunotkun
Gættu þess að vírusvörnin Lykla-Pétur uppfæri sig. Forritið á að sjá um uppfærslur sjálfvirkt, en samt er gott að ganga úr skugga um það öðru hverju með því að opna forritið og skoða stöðu kerfis.
Athugið hvort eldveggur (Firewall) sem fylgir Windows XP (Service pack 2) og nýrri stýrikerfum Windows sé virkur. Þetta er gert með því að smella Start / Control panel / Security center og athuga hvort eldveggur sé ekki örugglega á “On”
Eldveggur virkar sem mikilvægur skjöldur á milli tölvunnar þinnar og ýmissa skemmdarforrita af netinu.
Notið hugbúnað sem fjarlægir auglýsinga- og njósnaforrit ( þ.e.spyware / adaware). Ein leið til að sækja slíkan hugbúnað er að fara á heimasíðu okkar, www.frisk.is, smella á Hjálp / Uppsetning á Spybot S&D.
Verið varkár þegar ókunnugar vefsíður eru opnaðar. Sumar slíkar vefsíður óska eftir að svokallaðir ActiveX hlutir séu uppsettir á tölvunni. Slíkt ætti aldrei að samþykkja nema ljóst sé að viðkomandi sé treystandi.
Ef gluggi birtist óvænt frá netsíðu sem þú kannast ekki við, lokaðu glugganum með því að smella á X uppi í hægra horni, eða ýta á Ctrl hnappinn, halda honum niðri, og smella á F4 hnappinn. Ekki smella á “Yes” eða “No”
Hafið varann á þegar póstur frá ókunnugum er opnaður.Viðhengi eru sérstaklega hættuleg og ætti ekki að opna þau nema vitað sé með vissu hvað þau innihaldi, jafnvel þótt sendandinn sé þekktur. Margir ormar geta villt á sér heimildir og komast þannig inn í vélar.
Uppfærið Windows stýrikerfið reglulega. Mælt er með að nota Windows Automatic Updates til að hlaða inn uppfærslum, sjá www.windowsupdate.microsoft.com
Nánari upplýsingar um tölvuöryggi er að finna á heimasíðu okkar, www.frisk.is / þekkingargrunnur / tölvuöryggi
