FRISK Software International

FRISK Software International


Hægrisinnaður þýskur ruslpóstur

Reykjavík, 14. júní 2004

Undanfarna daga hefur flóð af pólitískum, þýskum ruslpósti ollið tölvunotendum og kerfisstjórum um allan heim miklum höfuðverkjum þar sem pósthólf hafa yfirfyllst á skömmum tíma og álag á póstkerfi fyrirtækja hefur aukist gríðarlega. Innihald þessara skilaboða er oftast á þýsku og er hægrisinnaður áróður sem sakar m.a. innflytjendur um öll helstu vandamál þýsks samfélags. Flóðið hófst snemma morguns síðastliðinn fimmtudag og er líklegt að ætlunin hafi verið að reyna að hafa áhrif á kosningar Evrópusambandsins sem fram fóru í seinustu viku.

W32/Sober.G@mm ormurinn, sem fyrst leit dagsins ljós um miðjan maí síðastliðinn, býr til bakdyr að þeim tölvum sem hann smitar. Þessar bakdyr hafa tölvuþrjótar nú nýtt sér til að senda út milljónir eintaka ofangreindra skilaboða, að eigendum tölvanna óafvitandi. Líklegt þykir að hér hafi hægrisinnaðir öfgamenn unnið með höfundum ormsins í þeim tilgangi að yfirtaka smitaðar tölvur og byggja upp lista yfir póstföng sem fundist hafa á smituðum vélum.

Með áframhaldandi þróun í þessa átt, þar sem pólitískir öfgahópar vinna með höfundum vírusa til að dreifa hugmyndafræði sinni með milljónum tölvupósta, munu fyrirtæki þurfa í síauknum mæli að reiða sig á póstsíunarþjónustur til þess að halda póstkerfum sínum gangandi.

Frekari upplýsingar um það hvernig þú getur varið þitt fyrirtæki gegn síauknum ruslpósti jafnt sem veirum og ormum má finna á upplýsingasíðu AVES þjónustu Friðriks Skúlasonar ehf.