FRISK Software International

FRISK Software International


Reykjavík, 17. ágúst 2005

W32/Zotob

W32/Zotob ormurinn nýtir sér nýtilkynntan veikleika í Microsoft Windows

W32/Zotob er ormur sem dreifir sér sjálfur í gegnum Internetið með því að leita að, og herja síðan á tölvur sem nota Windows 2000 stýrikerfið og sem ekki hafa náð í uppfærslur sem Microsoft gaf út þann 14. ágúst síðastliðinn (Microsoft Security Bulletin MS05-039 - [KB899588]).

Þessi ormur hefur hingað til birst í þremur útgáfum (W32/Zotob.A, W32/Zotob.B, W32/Zotob.C) og hefur náð töluverðri útbreiðslu á vissum svæðum á tiltölulega skömmum tíma. Windows 2000 notendur sem ekki hafa uppfært stýrikerfi sín síðan 15. ágúst 2005 eru hvattir til að gera það hið fyrsta með því að heimsækja uppfærslusíðu Microsoft. Þar að auki, til að verjast þessum ormum sem og hugsanlegum nýjum útgáfum, eru allir notendur hvattir til að uppfæra veirugagnaskrár Lykla-Péturs og ganga úr skugga um að þeir séu með nýjustu útgáfu Lykla-Péturs uppsetta.

Lykla-Pétur finnur W32/Zotob.A, W32/Zotob.B og W32/Zotob.C með veirugagnaskrám dagsettum 15. ágúst 2005 eða síðar.