Friðrik Skúlason ehf.

Sími: 540-7400
Fax: 540-7401
Söludeild: sala@frisk.is
Þjónustuver: thjonusta@frisk.is
Íslendingabók: islendingabok@islendingabok.is
Atvinnuumsóknir: jobs@frisk.is

Heimilisfang:
Þverholti 18
105 Reykjavík

Opnunartímar: Virka daga frá 8:30 til 17:00

Kennitala: 510693-2489
VSK númer: 38262

Friðrik Skúlason ehf. er á Facebook.

Fyrirtækið

Friðrik Skúlason ehf. var stofnað árið 1993 og starfar á sviði hugbúnaðar og rannsókna. Fyrirtækið byggir á traustum grunni og eftir meira en 20 ára veru á vírusvarnarmarkaðnum búa starfsmenn fyrirtækisins yfir víðtækri reynsla og þekkingu.

Fyrirtækið var með þeim fyrstu á landinu sem hófu sölu á vöru sinni og þjónustu í gegnum netið með hjálp tölvupósts. Það er nú meðal þeirra fremstu á sviði vírusvarnarrannsókna og gerð hugbúnaðar sem vinnur gegn tölvuóværum.

Markmið fyrirtækisins hefur frá upphafi verið að bjóða upp á framúrskarandi vírusvörn og skapa meira öryggi fyrir tölvutækar upplýsingar en ör þróun upplýsingatækninnar hefur aukið verðmæti þeirra stórlega. Til þess þarf einfalt, skilvirkt og umfram allt áreiðanlegt vírusvarnarforrit.

Með markaðssetningu á netinu komst Lykla-Pétur til metorða bæði á Íslandi og alþjóðamarkaði. Fyrirtækið er betur þekkt sem FRISK Software International á alþjóðlegum vettvangi, en þar nýtur það mikilla vinsælda og er með virtari aðilum í þessum geira hugbúnaðargerðar.

Friðrik Skúlason ehf. hefur einnig staðið að útgáfu ættfræðiforritsins Espólíns, en ástæðu fyrir gerð forritsins má rekja til mikils áhuga Friðriks á ættfræði Íslendinga. Espólín forritið þróaðist síðar í samvinnu við Íslenska erfðagreiningu yfir í Íslendingabók sem er öllum Íslendingum aðgengileg í gegnum netið.

Friðrik Skúlason þróaði ritvilluvörnina Púka út frá lokaverkefni sínu úr tölvunarfræði í Háskóla Íslands ásamt Steinþóri Bjarnasyni. Púki hefur gagnast mörgum notendum við yfirferð íslensks máls og er enn jafn vinsæll og áður.

Friðrik Skúlason hefur alltaf áhuga á að heyra frá hæfileikaríku fólki sem langar að starfa í krefjandi og skemmtilegu umhverfi. Þú getur sent starfsumsókn á jobs@frisk.is

Verðlaun og viðurkenningar

Upplýsingatækniverðlaun

Friðrik Skúlason hlaut Upplýsingatækniverðlaun Skýrslutæknifélags Íslands árið 2010 fyrir framúrskarandi framlag til upplýsingatækni á Íslandi. Mikilvægi upplýsingatækni hefur aukist gríðarlega á undanförnum árum og samfara því hefur krafa um öryggi gagna aukist. Í umfjöllun verðlaunanefndarinnar sagði að vírushugbúnaður Friðriks Skúlasonar hafi lagt þar mikið af mörkum. Friðrik hafi auk þess verið óþreytandi við að fjalla um tölvuöryggismál í ræðu og riti, svo eftir hefur verið tekið. Friðrik áttaði sig einnig snemma á möguleikum netsins og nýtti til sölu og markaðssetningar jafnvel áður en aðrir vissu um tilvist internetsins. Önnur forrit Friðriks hafa vakið eftirtekt, en þar má nefna Espólín ættfræðiforrit og ritvilluvörnina Púki.

Tölvufræðingur 20. aldarinnar

Skýrslutæknifélag Íslands útnefndi Friðrik Skúlason sem tölvufræðing 20. aldarinnar vegna mikilvægs framlags hans til tölvu- og upplýsingatækni á Íslandi.

Íslensku tölvuverðlaunin

Í febrúar 1999 var Friðrik Skúlason heiðraður sem tölvumaður ársins. Heiðurinn féll Friðriki í skaut vegna framúrskarandi árangurs og frumlegrar hönnunar á sviði hugbúnaðarþróunar. Að verðlaununum stóðu Rafiðnaðarsamband Íslands, Landsamband íslenskra rafverktaka, Íslenska álfélagið, Tölvuheimar, Rafiðnaðarskólinn og Viðskipta- og tölvuskólinn.

Gæðastimpill frá Virus Bulletin

Friðrik Skúlason ehf. hefur reglulega hlotið gæðastimpil frá tímaritinu Virus Bulletin fyrir vírusvörnina Lykla-Pétur og tekið þátt í samanburðarrannsóknum þeirra frá 1999. Lykla-Pétur hefur hlotið gæðastimpilinn alls 31 sinni fyrir allar vörutegundir Lykla-Péturs. Virus Bulletin er óháður aðili sem gefur út samnefnt tímarit um vírusa og varnir gegn þeim, og prófar reglulega allar helstu vírusvarnir sem eru í boði. Það er vírusvarnarfyrirtækjum mikið kappsmál að hljóta þennan gæðastimpil. Þessi niðurstaða Virus Bulletin setur Lykla-Pétur í hóp öflugustu vírusvarna heims.

OPSWAT

Friðrik Skúlason ehf. er með vottun frá fyrirtækinu OPSWAT sem viðurkenndur samstarfsaðili og fyrir vírusvörnina Lykla-Pétur.
Vottunarkerfi OPSWAT miðar að því að auðvelda samvinnu milli ólíkra aðila og teljast vörur sem fá vottun frá fyrirtækinu samhæfðar með öðrum vörum sem fengið hafa sömu vottun.

Aðrar samanburðarrannsóknir

Aðrir utanaðkomandi aðilar sem koma að því að dæma vírusvörnina Lykla-Pétur eru AV-Test. Niðurstöður úr þeim samanburðarrannsóknum eru nýttar innanhúss og gagnast fyrirtækinu við að halda góðum gæðastaðli.

Vírusvörnin Lykla-Pétur er að auki í stöðugum prófunum innanhúss þar sem farið er yfir gæði og virkni, og uppfærslur og ný hönnun prófuð.

Endursöluaðilar

Friðrik Skúlason ehf. er með endursöluaðila um allt land. Friðrik Skúlason ehf. er einnig með yfir 300 endursöluaðila og samstarfsaðila víða um heim.

Endursöluaðilar
Sækja um að gerast endursöluaðili

Ættfræðigrunnur Íslendinga á Netinu

Friðrik Skúlason og Íslensk erfðagreining hafa sameiginlega byggt upp ættfræðigrunn á undanförnum árum. Fyrirtækin ákváðu í upphafi árs 2000 að opna grunninn til almennrar notkunar á Netinu, án endurgjalds.

Ættfræðigrúsk hefur öldum saman verið ein vinsælasta tómstundaiðja Íslendinga og krefst oft töluverðra rannsókna á heimildum. Friðrik Skúlason hefur allt frá árinu 1988 unnið að því að safna ættfræðiupplýsingum og koma þeim á tölvutækt form. Síðustu árin hafa fyrirtækin tvö unnið að því sameiginlega að auka við þessi gögn og gera þau aðgengilegri fyrir notendur, þar á meðal fyrir erfðafræðirannsóknir. Fimmtán manns hafa verið að störfum við þetta verk að jafnaði frá því samstarf fyrirtækjanna hófst árið 1997.

Markmiðið með Íslendingabók er að koma öllum þeim upplýsingum, sem til eru um ættir Íslendinga, á einn stað. Grunnurinn inniheldur nú um 770.000 nöfn.

Íslendingabók nær yfir 95% ættartenginga á 20. öldinni, 98% fyrir þá nítjándu og 75% fyrir þá átjándu.
Íslendingabók er aðgengileg á Netinu á slóðinni:

http://www.islendingabok.is/

Fyrirtækið er skráð í hlutafélagaskrá

2011-2012 © Friðrik Skúlason ehf. · Þjónusta: thjonusta@frisk.is · Söludeild: sala@frisk.is · Sími 540 7400