FRISK Software International

FRISK Software International


Vírusvörnin F-PROT Antivirus

Friðrik Skúlason ehf. hefur í áraraðir unnið að vírusvarnarlausnum fyrir fyrirtæki landsins.

Þú getur keypt forrit Friðriks Skúlasonar ehf. í netverslun fyrirtækisins.

Lykla-Pétur (F-PROT Antivirus) er ein öflugasta veiruvörn sem völ er á. Þróað af nokkrum helstu veirusérfræðingum heims. Þó að Lykla-Pétur (F-PROT Antivirus) sé gríðarlega öflugt veiruvarnarforrit þá leggur það samt mun minna álag á tölvuna þína en mörg af helstu veiruvarnarforritunum á markaðnum í dag.

Við bjóðum upp á heimilisleyfi, sér-leyfi fyrir bæði heimili og lítil fyrirtæki (Small Business) og fyrirtækjaleyfi.

Þú getur sótt 60 daga reynsluútgáfu af Lykla-Pétri hér.

Friðrik Skúlason ehf. býður upp á íslensku ritvilluvörnina Púka. Púki les yfir texta í Office pakkanum á einfaldan og hraðvirkan máta og kemur með tillögur að leiðréttingum.

Helstu upplýsingar um þessar vörur eru að finna á vefsvæðinu fyrir Púka.

F-PROT AVES póstsíunarþjónustan tekur á þeim vaxandi veiru- og ruslpóstvanda sem hrjáir tölvupóstnotendur um allan heim. Með þjónustunni eru viðskiptavinir okkar verndaðir gegn þessum vanda, en án þess að teppa eða tefja fyrir nauðsynlegum tölvusamskiptum fyrirtækjanna.

Exchange hópvinnukerfið frá Microsoft er vinsælasta hópvinnukerfið í heiminum í dag og er í notkun hjá fjölmörgum fyrirtækjum af öllum stærðum.

Nú er hægt að vernda öll gögn sem eiga leið um Exchange hópvinnukerfið fyrir tölvuveirum og annarri óáran með áreiðanlegri veiruvörn F-PROT Antivirus.

Friðrik Skúlason ehf. framleiðir vírusvarnarforrit fyrir ýmis stýrikerfi: F-PROT Antivírus fyrir Linux x86/BSD x86, F-PROT Antivírus fyrir Solaris SPARC/Solaris x86, F-PROT Antivírus fyrir IBM þjóna.

Helstu upplýsingar um þessar vörur eru að finna á ensku síðum Friðriks Skúlasonar ehf.

Espolin Ættfræðiforritið Espólín er löngu orðið þekkt meðal ættfræðinga til skráningar ættfræðiupplýsinga. Espólín keyrir á DOS formi og gerir því litlar kröfur til vélbúnaðar.

Helstu upplýsingar um þessar vörur eru að finna á hér.