Friðrik Skúlason ehf.
Fyrirtækið starfar á sviði hugbúnaðar og rannsókna. Það var stofnað árið 1993 með það að markmiði að hasla sér völl á sviði veiruvarna. Fyrirtækið var með þeim fyrstu á landinu sem hófu sölu á vöru sinni og þjónustu í gegnum Netið með hjálp tölvupósts. Það er nú meðal þeirra fremstu á sviði veiruvarnarrannsókna og gerð hugbúnaðar sem vinnur gegn tölvuveirum.
Markmið fyrirtækisins hefur frá upphafi verið að skapa meira öryggi fyrir tölvutækar upplýsingar en ör þróun upplýsingatækninnar hefur aukið verðmæti þeirra stórlega. Til þess þarf einfalt, skilvirkt og umfram allt áreiðanlegt veiruvarnarforrit. Fyrirtækið framleiðir hið geysiöfluga veiruvarnarforrit Lykla-Pétur (F-PROT Antivirus), sem fyrst kom til sögunnar árið 1989.
Með markaðssetningu á Netinu komst Lykla-Pétur til metorða bæði á Íslands- og alþjóðamarkaði. Fyrirtækið er betur þekkt sem Frisk Software International á alþjóðlegum vettvangi, en þar nýtur það mikilla vinsælda og er með virtari aðilum í þessum geira hugbúnaðargerðar.
Friðrik Skúlason ehf. hefur einnig staðið að útgáfu ættfræðiforritsins Espólíns, en ástæðu fyrir gerð forritsins má rekja til mikils áhuga Friðriks á ættfræði Íslendinga.
Friðrik Skúlason ehf.
| Sími: | 540-7400 | Söludeild: | sala@frisk.is | |
| Fax: | 540-7401 | Þjónustuver: | thjonusta@frisk.is | |
| Íslendingabók: |
islendingabok@islendingabok.is |
|||
| Atvinnuumsóknir: |
jobs@frisk.is |
|||
| Heimilisfang: |
Þverholti 18 105 Reykjavík |
|||
| Kennitala: | 510693-2489 | |||
| Opnunartímar: | Virka daga | VSK númer: | 38262 | |
| frá 8:30 til 17:00 | Fyrirtækið er skráð í hlutafélagaskrá |
|||
