Friðrik Skúlason ehf. hefur í áraraðir unnið að tölvulausnum fyrir heimili landsmanna. Lögð er aðaláhersla á öryggislausnir og vírusvarnir en
fyrirtækið hefur einnig langa sögu í ættfræði og ritvilluvörnum.
Þú getur keypt forrit Friðriks Skúlasonar ehf í netverslun fyrirtækisins.
F-PROT Antivirus (Lykla-Pétur) er ein öflugasta veiruvörn sem völ er á. Þróað af nokkrum helstu veirusérfræðingum heims.
Þó að F-PROT Antivirus (Lykla-Pétur) sé gríðarlega öflugt veiruvarnarforrit þá leggur það samt mun
minna álag á tölvuna þína en mörg af helstu veiruvarnarforritunum á markaðnum í dag.
Þú getur sótt reynsluútgáfu af F-PROT Antivírus hér.
Espólín er ættfræðiforrit. Það er sérstaklega ætlað til þess að skrá ættfræðiupplýsingar. Espólín gerir notandanum meðal annars kleift að búa til niðjatöl, rekja framættir manna, rekja saman ættir og teikna ættartré.
Púki 2003 er ritvilluvörn gerð fyrir Office hugbúnaðar-pakkann frá Microsoft. Hægt er að tengja Púkann inn í öll forrit Office pakkans.
Friðrik Skúlason og Íslensk erfðagreining hafa sameiginlega byggt upp ættfræðigrunn á undanförnum árum. Fyrirtækin hafa ákveðið að opna grunninn til almennrar notkunar á Netinu, án endurgjalds.

