Lykla-Pétur vírusvörn

Lykla-Pétur vírusvörn fyrir Windows (F-PROT Antivirus) er íslensk vírusvörn sem byggir á margra ára rannsóknar- og þróunarvinnu helstu veiruvarnasérfræðinga hérna heima og erlendis.Lykla-Pétur er eitt fremsta vírusvarnaforritið á markaðnum í dag.

Viðmótið er allt á íslensku og áskriftin veitir fullan aðgang að frábærri þjónustu, að sögn viðskiptavina okkar. Heimilisútgáfa Lykla-Péturs kostar aðeins 4.900 kr. fyrsta árið og lækkar um 40% við endurnýjun að ári liðnu, eða í 2.900 kr. Heimilisútgáfan gildir fyrir allar vélar á einu heimili, eða allt að 5 tölvur. Við kaup eru þér sendar uppl. um hvernig þú halar forritinu niður.

Friðrik Skúlason ehf. leggur mikið upp úr tölvuöryggi viðskiptavina sinna. Hér eru nokkrar leiðbeiningar sem notendum Lykla-Péturs er ráðlagt að fylgja.

Lykla-Pétur býður upp á:

  • Sjálfvirka skanna sem fylgjast með öllum skrám þegar skrár eru opnaðar, vistaðar eða afritaðar.
  • Sjálfvirka skráarkerfisvörn sem býður upp á alsjálfvirka vörn fyrir allar skrár á tölvunni.
  • Sjálfvirka hreinsun veira, orma og Trójuhesta án þess að skemma lögleg gögn.
  • Háþróaða reglusafnaleit sem verndar tölvuna gegn nýjum og jafnvel óþekktum veirum.
  • Alsjálfvirkar uppfærslur á veirugagnaskrám og á forritinu sjálfu.
  • Vafra- og tölvupóstvörn sem býður upp á sjálfvirka rauntíma vörn fyrir allar skrár sem tölvan sækir inn á skráarkerfi tölvunnar.
  • Vörn gegn hættulegum ActiveX skrám.
  • Sóttkví til að einangra smitaðar og grunsamlegar skrár.
  • Háþróaðan skipanalínuskanna (e. command line scanner) fyrir þá lengra komnu.
  • Ítarlega upplýsingaskráningu í kerfisgögn og leitarskýrslur.
  • Útilokanir á skrám, möppum eða skáargerðum fyrir sjálfvirka og handvirka skönnun.
Vinsamlega gætið þess að tölvan ykkar mæti lágmarks vélbúnaðar- og hugbúnaðarkröfum áður en uppsetning Lykla-Péturs er ræst. Þessar kröfur þarf að uppfylla til að öruggt sé að Lykla-Pétur keyri eðlilega.Stýrikerfisstuðningur:

  • Windows 7 (32 og 64 bita)
  • Windows Vista (32 og 64 bita)
  • Windows XP Home eða Professional (32 og 64 bita)
  • Windows Server 2008 (32 og 64 bita)
  • Windows Server 2003
  • Windows 2000 Professional eða Server

Athugið einnig að Internet Explorer 5.0 eða nýrri útgáfa þarf að til staðar. Ekki er þó nauðsynlegt að hún sé í beinni notkun.

Uppfærslur sem mælt er með:

Vélbúnaðarkröfur:

  • að minnsta kosti 120 MB af lausu diskrými
  • 800×600 skjáupplausn (Mælt með 1024×768 eða hærri upplausn)
  • minnst 16 bita litaupplausn

Annar studdur hugbúnaður:

  • Microsoft Outlook 2000 eða nýrri útgáfa
  • Microsoft Office 2000 eða nýrri útgáfa
Til viðbótar við heimilisútgáfu Lykla-Péturs þá býður fyrirtækjaútgáfan upp á svokallaðar “LAN” uppfærslur. Með því geta fyrirtæki sett upp net sitt þannig að aðeins ein tölva, internet uppfærslutölvan, sækir uppfærslur af netinu og að Lykla-Pétur á öðrum tölvum á innra neti fyrirtækisins sækja svo uppfærslur sínar þaðan.

Sækja 32-bita Reynsluútgáfu
Sækja 64-bita Reynsluútgáfu

Smáfyrirtækjaútgáfa
Fyrirtækjaútgáfa

4.900 KR.

Setja í körfu

2011-2012 © Friðrik Skúlason ehf. · Þjónusta: thjonusta@frisk.is · Söludeild: sala@frisk.is · Sími 540 7400