F-PROT Antivirus fyrir snjallsíma: Spurningar og Svör
Hvað er snjallsími?
Snjallsími er handhægt tæki sem hefur eiginleika bæði farsíma og tölvu. Flestir snjallsímar á Íslandi eru frá Nokia en t.d. þá bjóða fleiri framleiðendur upp á snjallsíma á Íslandi svo sem HTC og Blackberry.
Hvernig veit ég hvort síminn minn sé sýktur?
Veirur hafa mismunandi áhrif á síma. Algeng einkenni eru :
- Síminn keyrir hægar en venjulega.
- Þú hefur ekki aðgang að einhverjum skrám, jafnvel engum.
- Öll teikn (enska: "icons") hafa horfið eða breyst öll í sama teiknið.
- Símreikningar hafa hækkað án þess að notkun hafi verið aukin.
- Síminn endurræsir sig á mánaðarfresti.
- Rafhlaða endist skemur en venjulega.
Þessi listi er ekki tæmandi. Ef þú tekur eftir því að síminn þinn hegðar sér óvenjulega er möguleiki að hann sé sýktur af veiru.
Hvernig get ég forðast að fá símavírus?
Sömu reglur gilda um veirur sem herja á síma og aðrar tölvuveirur. Mikilvægt er að opna ekki óþekkt tölvupóstviðhengi og samþykkja ekki að taka við skrám í gegnum bluetooth eða önnur þráðlaus net án þess að vita fyllilega um hvað ræðir og hver sendir.
Virkar F-PROT Antivirus á símanum mínum?
F-PROT Antivirus virkar á flestar tegundir snjallsíma og lófatölva. Til eru útgáfur af forritinu fyrir Symbian snjallsíma (t.d. Nokia), Windows Mobile síma og Pocket PC tæki.
Listi yfir síma og símastýrikerfi sem F-PROT Antivirus styður:
Symbian:
- Lenovo P930
- Panasonic X700
- Panasonic X800
- Nokia 3230
- Nokia 3250
- Nokia 5500
- Nokia 6110 Navigator
- Nokia 6260
- Nokia 6290
- Nokia 6620
- Nokia 6630
- Nokia 6670
- Nokia 6680
- Nokia 6681
- Nokia 6682
- Nokia 7610
- Nokia E50
- Nokia E60
- Nokia E61
- Nokia E61i
- Nokia E62
- Nokia E65
- Nokia E70
- Nokia E90
- Nokia N70
- Nokia N71
- Nokia N72
- Nokia N73
- Nokia N75
- Nokia N76
- Nokia N77
- Nokia N80
- Nokia N91
- Nokia N92
- Nokia N93
- Nokia N93i
- Nokia N95
- Samsung SGH-Z600
Windows Mobile:
- Win CE Mobile 2003 SE
- Win CE Mobile 5
- Win CE Mobile 6
PocketPC:
- Win CE Pocket PC 2003 SE
- Win CE Pocket PC Mobile 5
- Win CE Pocket PC Mobile 6
Þó síminn þinn eða stýrikerfi séu ekki á listanum getur vel verið að F-PROT Antivirus hafi stuðning. Hafið samband í thjonusta@frisk.is eða 540-7400 og spyrjist fyrir ef þið hafið áhuga.
