Notendaskilmálar
LEYFISNOTANDASAMNINGUR FYRIR F-PROT ANTIVIRUS
Þetta er bindandi samningur milli leyfishafa og Friðriks Skúlasonar ehf. (hér eftir nefnt FS) varðandi notkun á F-PROT Antivirus. Með því að leyfishafi samþykki þessa skilmála eða nýti þau réttindi sem í honum felast til að dreifa, afrita, setja upp eða nota F-PROT Antivirus, telst vera kominn á bindandi samningur. Ef þessir skilmálar eru ekki samþykktir er leyfishafa óheimilt að dreifa, afrita, setja upp eða nota F-PROT Antivirus.
Hugbúnaðarleyfi
1. Leyfistakmarkanir: Veitt leyfi frá FS til leyfishafa nær til einnar af neðangreindum vörutegundum:
1.1. F-PROT Antivirus fyrir Windows:
1.1.1. F-PROT Antivirus fyrir Windows, Heimilisútgáfa: Leyfið nær til tölva og skjala sem geymd eru á harða diskinum. Ef tölvurnar veita kerfisþjónustu þá þarf póstþjóna- eða skráaþjónaleyfi.
1.1.2. F-PROT Antivirus fyrir Windows, Fyrirtækjaútgáfa: Leyfið nær til tölva og skjala sem geymd eru á harða diskinum. Ef tölvurnar veita kerfisþjónustu þá þarf póstþjóna- eða skráaþjóna leyfi.
1.1.3. F-PROT Antivirus fyrir Windows fyrir póstþjóna: Leyfið nær til póstþjóna, póstgagnahleypa, póstgátta, þ.e. tölva sem veita póstþjónustu fyrir netkerfi, fyrir annað hvort inn- eða útpóst.
1.2. F-PROT Antivirus fyrir Exchange póstþjón: Leyfið nær til póstþjóna, póstgagnahleypa, og póstgátta, þ.e. tölva sem veita póstþjónustu fyrir netkerfi, fyrir annað hvort inn- eða útpóst.
1.3. F-PROT Antivirus fyrir Linux/BSD póstþjóna: Leyfið nær til póstþjóna, póstgagnahleypa, og póstgátta, þ.e. tölva sem veita póstþjónustu fyrir netkerfi, fyrir annað hvort inn- eða útpóst.
1.4. F-PROT Antivirus fyrir Linux/BSD skráaþjóna: Leyfið nær til skráa-, prent- og netþjóna, þ.e. tölva sem veita aðra kerfisþjónustu en póstþjónustu.
1.5. F-PROT Antivirus fyrir Linux/BSD vinnustöðvar: Leyfið nær til vinnustöðva og skjala sem geymd eru á harða diskinum. Ef tölvurnar veita kerfisþjónustu þá þarf póstþjóna- eða skráaþjónaleyfi.
1.6. F-PROT Antivirus fyrir AIX - IBM pSeries (RS/6000): Leyfið nær til netþjóna, þ.e. tölva sem veita póstþjónustu fyrir netkerfi, fyrir annað hvort inn- eða útpóst, eða netþjóna sem veita aðra kerfisþjónustu en póstþjónustu.
1.7. F-PROT Antivirus fyrir Linux - IBM zSeries (S/390): Leyfið nær til netþjóna, þ.e. tölva sem veita póstþjónustu fyrir netkerfi, fyrir annað hvort inn- eða útpóst, eða netþjóna sem veita aðra kerfisþjónustu en póstþjónustu.
1.8. F-PROT Antivirus fyrir Solaris póstþjóna: Leyfið nær til póstþjóna, póstgagnahleypu, og póstgátta, þ.e. tölva sem veita póstþjónustu fyrir netkerfi, fyrir annað hvort inn- eða útpóst.
1.9. F-PROT Antivirus fyrir Solaris skráaþjóna: Leyfið nær til skráa-, prent- og netþjóna, þ.e. tölva sem veita aðra kerfisþjónustu en póstþjónustu.
1.10. F-PROT Antivirus fyrir Solaris vinnustöðvar: Leyfið nær til vinnustöðva og skjala sem geymd eru á harða diskinum. Ef tölvurnar veita kerfisþjónustu þá þarf póstþjóna- eða skráaþjónaleyfi.
2. Leyfisveiting:
2.1. Hugbúnaður: FS veitir leyfishafa almennt, óframseljanlegt leyfi til að nota og setja upp F-PROT Antivirus á tölvur í eigu leyfishafa, hvort sem er til reynslu ("reynsluleyfi") eða almennt leyfi ("veiruvarnarleyfi"), sem í sameiningu kallast FS leyfi, en leyfi þessi lúta eftirfarandi skilmálum:
2.2. Reynsluleyfi: FS getur veitt leyfishafa leyfi til notkunar "reynsluleyfis" og úthlutað honum "reynslulykli" til að fá uppfærslur af veirugagnaskrám. Þessi "reynslulykill" er í gildi í allt að 30 daga. Ef leyfishafi notar F-PROT Antivirus vöruna eftir að þessi reynslutími rennur út þarf leyfishafi að kaupa "veiruvarnarleyfi" af FS og fá "áskriftarlykil". Óheimilt er að dreifa og samnýta "reynslulykil" en hann er aðeins til notkunar fyrir leyfishafa. "Reynsluleyfi" rennur út 30 dögum eftir uppsetningu.
2.2.1. Uppsetning: Leyfishafi má setja upp og nota hugbúnaðinn til reynslu án greiðslu í allt að 30 daga með því að nota "reynsluleyfi". Leyfishafi getur gert leyfið virkt áfram með því að kaupa "veiruvarnarleyfi" og fá "áskriftarlykil."
2.2.2. Takmarkanir á notkun: Reynsluleyfi felur í sér takmarkaðan aðgang og notkun af reynslulykli og uppfærslum í 30 daga. Óheimilt er að samnýta, dreifa eða nota samtímis á öðrum tölvum. Reynsluleyfi er veitt leyfishafa fyrir ákveðna tölvu og skal aðeins nota á þeirri tölvu.
2.3. Veiruvarnarleyfi. Við kaup á veiruvarnarleyfi setur leyfishafi hugbúnaðinn upp og gerir virkan með því að slá inn áskriftarlykil en veiruvarnarleyfið er líka hægt gera virkt með því að setja inn áskriftarlykil í stað reynslulykils beint úr reynsluleyfinu eftir að reynslutíma líkur. Þetta er almennt leyfi og er veitt öllum þeim er hafa keypt hafa FS hugbúnað upptalin hér að ofan.
Skilmálar er varða tegund leyfis, lengd leyfis og fjöldi tölva sem leyfið nær yfir koma fram á reikningi við kaup. Leyfishafi fær afhent eftirfarandi við kaup: (i) viðskiptanúmer til að fá aðgang að vöru og til að fá uppfærslur og (ii) áskriftarlykil til að uppfæra veirugagnaskrár.
Leyfishafi má taka eitt öryggisafrit af F-PROT Antivirus forritinu. Öll önnur fjölföldun og dreifing á forritinu eða meðfylgjandi prentuðu efni er stranglega bönnuð. Óheimilt með öllu er að dreifa áskriftarlykli og notkun þess er takmörkuð við leyfishafa.
2.3.1. Uppsetning.
2.3.1.1. Leyfishafi má setja upp og nota F-PROT Antivirus fyrir Windows, Fyrirtækjaútgáfu á þann fjölda tölva sem FS leyfið kveður á um. Leyfishafi F-PROT Antivirus fyrir Windows, Heimilisútgáfu má setja upp og nota forritið á allt að 5 tölvum á sama heimili til einkanota. Leyfishafi F-PROT Antivirus fyrir Windows fyrir póstþjóna má setja upp forritið á póstþjóna, póstgagnahleypur, póstgáttir (tölvur sem veita póstþjónustu fyrir netkerfi) fyrir þann fjölda notenda sem FS leyfið kveður á um.
2.3.1.2. Leyfishafi má setja upp F-PROT Antivirus fyrir Exchange á þann fjölda pósthólfa á póstþjóninum sem FS leyfið kveður á um.
2.3.1.3. Leyfishafi má setja upp F-PROT Antivirus fyrir Linux/BSD póstþjóna á þann fjölda notenda sem FS leyfið kveður á um.
2.3.1.4. Leyfishafi má setja upp F-PROT Antivirus fyrir Linux/BSD skráaþjóna á þann fjölda skráaþjóna sem FS leyfið kveður á um.
2.3.1.5. Leyfishafi má setja upp F-PROT Antivirus fyrir Linux/BSD vinnustöðvar á þann fjölda vinnustöðva sem FS leyfið kveður á um.
2.3.1.6. Leyfishafi má setja upp F-PROT Antivirus fyrir AIX - IBM pSeries (RS/6000) fyrir þann fjölda notenda á netþjóninum sem FS leyfið kveður á um.
2.3.1.7. Leyfishafi má setja upp F-PROT Antivirus fyrir Linux - IBM zSeries (S/390) fyrir þann fjölda notenda á netþjóninum sem FS leyfið kveður á um.
2.3.1.8. Leyfishafi má setja upp F-PROT Antivirus fyrir Solaris póstþjóna fyrir þann fjölda notenda sem FS leyfið kveður á um.
2.3.1.9. Leyfishafi má setja upp F-PROT Antivirus fyrir Solaris skráaþjóna fyrir þann fjölda skráaþjóna sem FS leyfið kveður á um .
2.3.1.10. Leyfishafi má setja upp F-PROT Antivirus fyrir Solaris vinnustöðvar á þann fjölda vinnustöðva sem FS leyfið kveður á um.
3. Önnur réttindi og takmarkanir
3.1. Ekki til endursölu: F-PROT Antivirus er einungis til einkanota eða fyrirtækjanota en ekki til endursölu og er óheimilt að dreifa, afrita eða framselja F-PROT Antivirus gegn greiðslu.
3.2. Takmarkanir vegna afþýðingar, sundurgreiningar og sundurþáttunar (e.reverse engineering, decompilation and disassembly). Leyfihafa er óheimilt að afþýða, sundurgreina eða sundurþætta hugbúnaðinn að því undanskildu að slíkt sé sérstaklega heimilað með gildandi lögum.
3.3. Leiga: leyfishafa er óheimilt að endurleigja, kaupleigja eða lána forritið.
3.4. Þjónusta og tækniaðstoð. FS veitir leyfishafa tækniaðstoð að því marki sem nauðsyn krefur.
3.5. Uppsögn samnings: Með fyrirvara um önnur réttindi getur FS sagt þessum samningi upp ef leyfishafi hefur ekki virt skilmála hans og skilyrði. Í því tilviki verður leyfishafi að eyða öllum afritum af forritinu og meðfylgjandi íhluta.
3.6. Nýjar útgáfur: Ef leyfishafi finnur nýja veiru, áður óþekkta af FS og sendir eintak til FS, mun endurbætt útgáfa af F-PROT Antivirus send til leyfishafa eins fljótt og kostur er.
4. Höfundaréttur: Allur eignaréttur og hugverkaréttur vegna F-PROT Antivirus forritsins, þar með talið meðfylgjandi prentað efni og eintök af forritinu af netinu, eru eign FS. Allur eignaréttur og hugverkaréttur sem hægt er að fá aðgang að með notkun F-PROT Antivirus eru eign viðkomandi eiganda efnis og kann að vera vernduð að viðeigandi lögum um höfundarétt eða annan hugverkarétt. Þessi samningur veitir ekki réttindi til slíkrar notkunar. FS áskilur sér öll réttindi sem ekki er sérstaklega veitt, berum orðum í samningi þessum.
5. Takmörkuð ábyrgð: FS ábyrgist að F-PROT Antivirus hugbúnaðurinn virkar á gildistíma veiruvarnarleyfisins í samræmi við þær upplýsingar sem FS gefur. Leyfishafa er gert ljóst og samþykkir að hugbúnaðurinn er afhentur í því ástandi sem hann er, með öllum þeim göllum sem hugbúnaður getur haft.
6. Undanþágur frá ábyrgð: FS veitir enga frekari beinar eða óbeinar ábyrgðir varðandi notkun á F-PROT Antivirus, og tekur enga ábyrgð á vandamálum sem upp geta komið við notkun forritsins. Ef notandi uppgötvar hugbúnaðarvillu í F-PROT Antivirus, er bent á að hafa samband við Friðrik Skúlason ehf, sem mun laga eins fljótt og auðið er allar villur í forritinu sem leyfishafi kann að rekast á , á þann hátt sem FS telur viðeigandi. Villur sem stafa af vélbúnaðarbilunum eða truflunum, töpuðum gögnum eða truflunum á netþjónustu vegna þriðja aðila, eru sérstaklega undanskildar ábyrgð.
7. Takmörkun bótaskyldu: FS er ekki bótaskylt vegna óbeins, afleidds eða tilfallandi tjóns eða lögfræðikostnaðar vegna málsóknar, utan eða innan samninga, þrátt fyrir að FS gæti hafa verið ljóst að bótakrafa væri fyrir hendi.
8. Varnarþing: Rísi upp ágreiningur um stofnun eða túlkun samnings þessa eða einhverra ákvæða hans skal allur ágreiningur lúta íslenskum lögum og málinu vísað til Héraðsdóms Reykjavíkur.
