Óværa, eða spilliforrit, er samheiti yfir óæskilegan hugbúnað eins og vírusa, Trójuhesta, orma og auglýsinga- og njósnaforrit. Óværur eru fyrst og fremst hannaðar með hagnaðarsjónarmið að leiðarljósi ólíkt því sem áður var. Fyrst þegar óværur á borð við vírusa komu fram, var meginhlutverk þeirra að valda sem mestum skaða. Nú til dags veltir óværuiðnaðurinn miklum peningum og eru glæpasamtök helstu drifkraftar. Enn í dag geta óværur ollið miklum óskunda og fjárhagstjóni, bæði hjá fyrirtækjum og á heimilum. Þegar óværur komast inn á tölvukerfi, geta þær stolið viðkvæmum gögnum og valdið miklum töfum á vinnslu vélarinnar. Töluverður kostnaður getur fylgt því að losna við óværu sem hefur tekið sér bólfestu í tölvu auk þess tíma sem glatast á meðan vélin er óstarfhæf vegna smits.
Til að vernda tölvur gegn óværum þarf að hafa vírusvörn. Vírusvörn kemur í veg fyrir að óværa komist inn í vélina og hreinsar hana út ef hún kemst þar inn. Þeim mun betri vírusvörn sem notandi hefur á tölvu sinni, þeim mun minni líkur á því að óværa komist fram hjá. Með því að velja Lykla-Pétur fyrir tölvuna þína, færðu framúrskarandi vírusvörn auk frábærrar þjónustu. Auk vírusvarnar er gott að hafa hugbúnað sem finnur auglýsinga- og njósnaforrit.
