Púki ritvilluvörn

Púki ritvilluvörn nýtist til yfirlestrar á íslenskum texta en Púki les yfir og leiðréttir texta sem unninn er í forritum Office pakkans, t.d. Word, Outlook eða Powerpoint fyrir Windows. Púki getur skipt orðum milli lína og hægt er að láta hann læra ný orð. Ritvilluvörnin inniheldur einnig beygingaforrit til að skoða myndir orða og samheitaorðasafn sem hægt er að leita í jafnóðum og skrifað er.

Heimilisleyfi Púkans gildir fyrir allt að fimm tölvur á einu heimili. Öllum skráðum eigendum Púka býðst aðstoð við notkun og uppsetningu forritsins, annað hvort í gegnum síma eða tölvupóst. Á geisladisknum með Púka fylgir handbók uppfull af fróðleik um hvernig hægt er að nota forritið. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast í gegnum þjónustuvefinn okkar.

Púkinn er sniðinn til notkunar í innbyggðu yfirlestrarkerfi Microsoft og er forritið einfalt í uppsetningu og notkun. Stillingar á yfirlestri fara alfarið fram í yfirlestrarkerfi Microsoft Office pakkans.

Fyrir þá sem eru með eldri útgáfu Púka og vilja uppfæra í Púka fyrir Office 2010, hafið samband við söludeild okkar með tölvupósti sala@frisk.is eða í síma 540-7400.

Uppsetning og notkun:

Leiðbeiningar fyrir notkun Púkans er að finna í þekkingargrunni Friðriks Skúlasonar ehf. sem og pdf-handbókinni sem fylgir á DVD-diskinum. Alltaf má hafa samband við tækniþjónustuna ef upp koma vandamál.

Algeng spurning: Hvernig læt ég Púka lesa yfir texta í Word?

Notendaskilmálar:

Vél- og hugbúnaðarkröfur:

  • Windows stýrikerfi
  • Microsoft Office XP
  • Microsoft Office 2003
  • Microsoft Office 2007
  • Microsoft Office 2010
  • 10 MB laust diskpláss

Sækja Reynsluútgáfu
Fyrirtækjaútgáfa

7.500 KR.

Setja í körfu

2011-2012 © Friðrik Skúlason ehf. · Þjónusta: thjonusta@frisk.is · Söludeild: sala@frisk.is · Sími 540 7400