Lykla-Pétur er fyrsta flokks vírusvörn sem hefur verndað tölvur gegn vírusum, Trójuhestum, ormum og öðrum óværum í meira en 20 ár. Lykla-Pétur er byggður á flóknum samskiptum milli vírusleitarvélar og vírusgagnaskrár sem saman vinna að því að verja tölvur gegn árásum. Vírusum og öðrum óværum er ýmist eytt út sjálfkrafa eða hindrað er að þær geti komist inn á tölvuna, án þess að notandi þurfi að koma þar að.
Friðrik Skúlason ehf. hefur alla tíð verið framarlega í tækniþróun og nýjungum í vírusleitartækni. Fyrirtækið var eitt fyrsta fyrirtækið í heiminum til að setja vírusvörn á markað og nýtti sér frá upphafi internetið við dreifingu og sölu. Friðrik Skúlason ehf. var fyrsta fyrirtækið til að nýta gervigreind við vírusleit sem er staðall í iðnaðinum í dag. Með háþróaðri reglusafnaleit og reglulega uppfærðri vírusgagnaskrá, veitir Lykla-Pétur fyrirtaks vörn gegn óværum, bæði gömlum góðkunningjum og nýjum gestum.
Vélin – kjarni forritsins
Eitt lykilatriði að baki árangri Lykla-Péturs vörulínunnar, er vírusleitarvélin F-PROT. Hlutverk vírusleitarvélarinnar er að leita uppi óæskileg forrit og hindra að þau geti smitað tölvu notenda eða fjarlægja þau ef þau finnast. Vélin beitir ólíkum leiðum til að finna óværur og þar á meðal beitir vélin reglusafnaleit (e. heuristics). Reglusafnaleit er eins konar gervigreind og ein áhrifaríkasta vörnin gegn áður óþekktum óværum sem geta sýkt tölvur. Lykla-Pétur var fyrsta forritið á heimsvísu sem beitti þessari aðferð sem nú er staðalbúnaður í flestum vírusvörnum. Vélin er samansett úr nokkrum minni vélum sem hver um sig gegnir sérstöku hlutverki. Auk reglusafnaleitar nýtir Lykla-Pétur aðrar aðferðir til að bera kennsl á þekkta vírusa, orma og Trójuhesta. Vírusgagnaskrá heldur utan um leitaraðferðirnar og þangað sækir leitarvélin upplýsingar til að bera kennsl á óæskilegan hugbúnað.
Vírusleitarvélina er að finna í öllum útgáfum forritsins og er hún sannkallaður kjarni þess. Utan um vélina er smíðaðar útgáfur forritsins sem henta fyrir ýmis stýrikerfi, jafnt á útstöðvar, póstþjóna og skráarþjóna. Vélin þarf að vera í stöðugri þróun til að mæta nýjum ógnum. Vírusum og annarri óværu fjölgar á ógnarhraða og hönnun þeirra verður sífellt þróaðri. Fyrstu vírusarnir voru fyrst og fremst til ama en á síðustu árum hafa þeir farið að valda verulegum skaða og fjármagnstjóni.
Friðrik Skúlason ehf. býr yfir meira en 20 ára reynslu við hönnun og þróun vírusvarna og er í fremsta flokki í þeim geira. Lykla-Pétur er 100% íslenskt hugvit og byggð á hugmynd stofnanda fyrirtækisins, Friðriks Skúlasonar. Hann hefur verið í fararbroddi í þróun Lykla-Péturs frá því hann kom fyrst á markað árið 1989.
Vírusrannsóknir
Vírusrannsóknir eru mikilvægur hlekkur í starfsemi Friðriks Skúlasonar ehf., eins og hjá flestum öðrum vírusvarnarfyrirtækjum. Án þeirra yrði vírusvarnarforritið fljótt úrelt. Rannsóknir um vírusa og aðra óværu felast í því að greina vírusa, orma, Trójuhesta og önnur skaðleg forrit. Með rannsóknum er fundið út hvernig þessi forrit virka og hvernig megi bera kennsl á þau og þekkja frá öðrum óskaðlegum forritum. Í framhaldi af því er greint hvernig má fjarlægja óværuna eða hindra að hún nái að smita tölvuna. Þessum upplýsingum er bætt í gagnagrunn sem vírusleitarvélin leitar í til að verja tölvur gegn árásum frá tilteknum óværum. Gagnagrunnurinn er hluti af vírusgagnaskrá (e. signature file) sem býr einnig yfir öðrum háþróuðum leiðum til að finna og greina skaðleg forrit.
Til að geta greint vírusa og annan óæskilegan hugbúnað sem er á sveimi, eru lagðar gildrur á netinu og þegar hann finnst er hann greindur og upplýsingum um hann bætt í gagnagrunninn. Ábendingar um óæskilegan hugbúnað koma líka úr öðrum áttum, m.a. frá öðrum vírusvarnarfyrirtækjum, samstarfsaðilum okkar og viðskiptavinum. Skaðlegum hugbúnaði fjölgar hratt og undanfarin ár hefur hann að meðaltali tvöfaldast árlega.
F-PROT Antivirus, eða Lykla-Pétur, er vírusvörn sem veitir þér góða vörn gegn vírusum og öðrum óværum. Ef vírusvörnin er sett upp samhliða öflugum eldvegg (mælum t.d. með eldvegg sem fylgir Windows stýrikerfinu) og forriti sem eyðir út auglýsinga- og njósnaforritum, næst fram mjög öflug varnarlína gegn öllum tegundum af óværum.
Vörur
Vírusvörn Friðriks Skúlasonar ehf. er seld undir nafninu F-PROT Antivirus erlendis en þekkt sem Lykla-Pétur á Íslandi. Forritið er selt til bæði fyrirtækja og heimila, fyrir útstöðvar, póstþjóna og skráarþjóna. Mikið er lagt upp úr því að bjóða forritið fyrir sem flest stýrikerfi, bæði 32 og 64 bita, og fæst það m.a. fyrir Windows, Linux, Solaris og allar gerðir BSD. Vírusvarnarforritið hefur einnig verið þróað með þarfir ólíkra markaða í huga og er Windows útgáfan fáanleg á ýmsum tungumálum.
Lykla-Pétur er hannaður til þess að vera auðveldur í notkun og hafa lítil áhrif á vinnsluminni tölvunnar þinnar. Uppsetning tekur stuttan tíma og allar uppfærslur eru sjálfvirkar. Lykla-Pétur býður að auki upp á ýmsar stillingar sem færari notendur geta nýtt sér ef þeir vilja. Tækniþjónusta í gegnum síma og tölvupóst er innifalin í verðinu en við bjóðum einnig upp á hreinsun og yfirferð á tölvum viðskiptavina gegn lágmarks komugjaldi.
Auk þess að selja fullbúna vírusvörn, selur Friðrik Skúlason ehf. hugvitið að baki vírusleitarvélinni til annarra aðila. Slíkir aðilar forrita vírusleitarvélina saman við sína eigin vöru og bætast þá við vírusvarnareiginleikar. Nokkrir af okkar samstarfsaðilum af þessari gerð eru G-DATA og PerComp í Þýskalandi, Sendmail og Commtouch í Bandaríkjunum, Digital Systems í Slóvakíu og Coranti í Japan.
