Njósnaforrit og auglýsingaforrit (Spyware og Adware)
Þar sem njósnaforrit (spyware) og auglýsingaforrit (adware) eru ekki vírusar, og eru að jafnaði ekki uppsett nema með samþykki notanda, varar F-PROT Antivirus ekki við þeim. Njósna- og auglýsingaforrit hengja sig oft á forrit sem boðin eru ókeypis á netinu, s.s. Kazaa, MSN Plus, RealPlayer, Musicmatch og fleiri slík. Njósna- og auglýsingaforrit geta þannig, oftast með samþykki notenda, komist framhjá eldveggjum.
Lestu þér til um vöruna áður en þú setur hana upp
Þegar þú sækir ókeypis forrit, eins og Kazaa, er mjög mikilvægt að lesa alla skilmála. Á heimasíðu Kazaa (www.kazaa.com) er skýrt tekið fram að þegar þú sækir ókeypis útgáfu af forritinu, munu önnur forrit verða sett upp með því:
![]() |
Einnig er mjög mikilvægt að lesa alla notendaskilmála áður en forrit er sótt því þar koma oft fram upplýsingar um hvort auka forritum verði komið fyrir við uppsetningu viðkomandi hugbúnaðs. Eftirfarandi skjámynd er tekin úr uppsetningu á MSN Plus:
![]() |
Hugbúnaður til að finna njósna- og auglýsingaforrit
Til er hugbúnaður sem finnur njósna- og auglýsingaforrit. Hér er listi yfir vinsælan hugbúnað af þessu tagi:
Þessum forritum er dreift án endurgjalds.
Aðrir vafrar (browsers)
Flestum njósna- og auglýsingaforritum er beint að Internet Explorer vafranum. Í mörgum tilfellum leysist njósna- og auglýsingaforritavandinn ef notaður er annar vafri en Internet Explorer. Hér er listi yfir nokkra vafra sem dreift er án endurgjalds:


